Mikilvægt að læra að njóta tónlistar

Fréttir|26. mars 2021

Stemningin í vetur hefur frekar lágstemmd en allt horfir til betri vegar,“ segir Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri í Tónlistarskóla Árnesinga. COVID-19 hefur haft í för með sér að starfsfólk og nemendur hafa viðað að sér nýrri þekkingu í tæknimálum.

Skólastarfið er smám saman að færast í eðlilegt horf. Við héldum fyrstu tónleikana í gær sem var afar ánægjulegt. Nemendur máttu bjóða einum gesti og nöfn allra voru skráð. Þetta gekk mjög vel,“ segir Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga.

Helga hefur haft í nógu að snúast síðasta árið við að endurskipuleggja nám og kennslu í samræmi við sóttvarnareglur og annað sem hefur fylgt COVID-19 faraldrinum.

„Við fórum yfir í fjarkennslu síðasta vor og var það mikið stökk fyrir kennarana sem þurftu að gjörbreyta kennsluháttum. Þeir stóðu sig mjög vel í að halda úti gæðakennslu en þetta nýja fyrirkomulag reyndi bæði á kennara og nemendur. Margir voru úrvinda þegar skólaárinu lauk í fyrra en þegar litið er um öxl er alveg aðdáunarvert hve kennarar og nemendur stóðu sig vel við breyttar aðstæður,“ segir Helga.

Fjarkennsla skapar nýja möguleika í tónlistarnámi en Helga segir hana ekki koma í staðinn fyrir hefðbundna staðkennslu. „Það er alveg klárt að fjarkennsla opnar nýja möguleika þótt hún jafnist aldrei á við einkatíma í hljóðfæraleik, hvað þá í söng. Hins vegar má sjá fyrir sér möguleika t.d. varðandi tónfræðikennslu – einkum af því við erum svo dreifð – og einnig ef ófærð eða óveður hamla því að nemendur eða kennarar komist á kennslustað,“ segir Helga.

Jólatónleikarnir teknir upp

Tónlistarskóli Árnesinga er stór skóli, með yfir 500 nemendur auk á þriðja hundrað forskólanema. Kennarahópurinn er líka fjölmennur, en þeir eru 37 í dag. Nemendur stunda nám í skólanum á fjórtán stöðum þannig að yfirferð sumra kennara er töluverð. Helga hefur gegnt starfi skólastjóra síðan 2018 en starfsferill hennar er þó mun lengri, en hún var aðstoðarskólastjóri frá árinu 2000.

„Skólinn okkar er víðfeðmur og kennararnir þurfa að ferðast á milli staða. Kórónuveirufaraldurinn hafði í för með sér að mjög dró úr akstri hjá okkur en það hefur verið stór útgjaldaliður í rekstri skólans. Við ákváðum að nýta hluta af því fé sem sparaðist til að fjárfesta í upptökubúnaði. Við keyptum góða hljóðnema, myndavél og mixer til að taka upp efni í góðum gæðum.“

Nýju tækin voru notuð fyrir jólin en þá voru nemendur hvattir til að spila á myndbandi. „Þar sem við gátum ekki haldið hefðbundna jólatónleika ákváðum við að fara þessa leið, taka upp myndbönd og senda heim til nemendanna. Flestir nemendur tóku mjög vel í þetta en auðvitað voru sumir stressaðir, jafnvel meira en ef þeir hefðu spilað fyrir fullum sal. En af þessu öðlast nemendurnir reynslu sem þeir munu búa að. Þá vil ég nefna að lykilmaður í að koma þessu öllu af stað er Sigurgeir Skafti Flosason rafbassakennari, en hann hefur leitt okkur áfram,“ segir Helga og bætir við að kennarahópurinn hafi þegar sótt upptökunámskeið og fram undan sé námskeið í eftirvinnslu.

„Þessi þekking á án vafa eftir að glæða starfið hjá okkur og mun nýtast við tónleikahald og fleira. Við segjum að tæknibyltingin sé hafin og gangi hægt en bítandi.“
Þótt áhrifa COVID-19 hafi gætt í starfi tónlistarskólans segir Helga að sem betur fer hafi ekki þurft að loka skólanum.

„Það var auðvitað mikilvægt að halda úti kennslu allan tímann, þótt með öðrum hætti hafi verið. Við sluppum líka vel þegar kemur að starfsfólkinu, aðeins einn starfsmaður veiktist. Að því leyti hefur þetta ekki lagst þungt á okkur. Við erum auðvitað reiðubúin ef fleiri bylgjur koma – tökum því sem að höndum ber eins og aðrir.“

Blómlegt tónlistarlíf

Yfir fimm hundruð nemendur stunda nám í Tónlistarskóla Árnesinga og segir Helga tónlistarlíf á Suðurlandi blómlegt og gott. Margir kórar eru starfandi og þá hefur Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, sem var stofnuð í haust, hleypt lífi í menningarlífið. Stofnandi sveitarinnar er Guðmundur Óli Gunnarsson, en hann vann einnig að uppbyggingu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands fyrir um aldarfjórðungi.

„Sinfóníuhljómsveitin er góð viðbót í tónlistarlífið hér og gaman að segja frá því að fyrsta verkefni hennar var að leika fyrir grunnskólabörn á svæðinu. Það náðist að halda tónleika í Þorlákshöfn, Hveragerði og uppsveitum, en Árborg varð að bíða vegna COVID,“ segir Helga.

Mikilvægi tónlistarnáms er Helgu hugleikið enda þekkir hún af eigin raun hversu þroskandi og gott er fyrir börn og ungmenni að stunda slíkt nám. „Það gefur börnum mikið að ná færni í hljóðfæraleik og kannski ekki síður að læra að njóta tónlistar. Þetta sjáum við í okkar daglega starfi en við vitum líka að rannsóknir sýna ótvírætt hversu tónlist og tónlistariðkun hefur almennt góð áhrif.“

„Nýjar rannsóknir styðja þessa kenningu og nægir að nefna niðurstöður sem dr. Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, hefur kynnt. Í þeim kemur fram að tónlistarnám hjálpi börnum að læra að einbeita sér og það hefur auk þess varanleg góð áhrif á heilastarfsemina. Þetta eru áhugaverð vísindi sem mætti tala miklu meira um.“

Áratuga störf fyrir KÍ

Helga hefur einnig helgað krafta sína Kennarasambandinu og hefur átt sæti í kjörstjórn síðan árið 1996 og gegnir nú formennsku í stjórninni. „Ég er hálfgerður forngripur innan KÍ en ég hef alltaf haft áhuga á starfsemi sambandsins, byrjaði sem trúnaðarmaður fyrir margt löngu, komst þá að því hvað ég vissi lítið og fór að afla mér upplýsinga. Þetta var á þeim tíma sem Sigríður Sveinsdóttir var formaður ­Félags tónlistarskólakennara en við vorum samstarfskonur og þannig leiddist ég fyrst í félagsmálin,“ segir Helga.

Kjörstjórn KÍ ber ábyrgð á öllum atkvæðagreiðslum sambandsins, svo sem formannskjöri og þegar félagsmenn kjósa um nýja kjarasamninga eða um hvort fara eigi í verkfall. Verkefni kjörstjórnar eru mismikil eftir árum, en sem dæmi þá fundaði kjörstjórn átta sinnum á síðasta ári og hélt 12 atkvæðagreiðslur.

„Þessi vinna hefur verið ánægjuleg og óhætt að segja að maður hafi lifað tímana tvenna í þessu. Fyrstu minningar mínar eru hlaðin borð með umslögum og kjörskrár sem þurfti að stemma af. Nú eru kosningarnar rafrænar en ábyrgðin er sú sama, það má ekkert klikka og ævinlega þarf að vanda til verka," segir Helga Sighvatsdóttir skólastjóri. 

Viðtalið við Helgu birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2021.