Mikilvægt að fjölga kennurum af erlendum uppruna

Fréttir|22. maí 2022

Í nóvember fól mennta- og menningarmálaráðuneytið Menntavísindasviði Háskóla Íslands umsjón með átaksverkefni sem miðar að því að hvetja fólk með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn til að helga sig kennarastarfinu.

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, segir undirbúning að verkefninu hafinn í samstarfi þvert á deildir Menntavísindasviðs, auk þess sem samstarf verður við Hugvísindasvið sem hefur langa reynslu af háskólakennslu fullorðinna í íslensku sem öðru máli.

„Verkefnið felur í sér að nýta fyrirliggjandi námskeið sem og þróa námskeiðin okkar í átt til þess að veita markvisst meiri stuðning við íslenskunám þeirra sem vilja verða kennarar eða sérfræðingar af öðrum toga í menntakerfinu. Stefnan er sú að námið verði hluti af fimm ára kennaranámi. Einnig er í bígerð að skoða leiðir til að greiða almennt aðgengi fólks með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn að réttindum til starfa hér á landi, fólki sem hefur kennararéttindi eða annan bakgrunn sem nýtist í menntakerfinu.“

Að læra íslensku sem hluta af kennaranámi

Námskeið verða í boði strax haustið 2022 og átakið er liður í menntastoð framkvæmdaáætlunar í málefnum innflytjenda. Það fellur vel að vinnu kennararáðs sem tók til starfa við gildistöku nýrra laga um almenna hæfni kennara. Kristín Jónsdóttir, dósent í kennslu- og menntunarfræði, tók þátt í vinnu starfshóps sem beindi sjónum sínum að hæfni kennara til að miðla á íslensku.

„Ég er ákaflega ánægð með að í þeim starfshópi náðist samhljómur um að kennaranemar af erlendum uppruna gætu lært íslensku sem hluta af sínu kennaranámi. Það eru þýðingarmikil skilaboð til stórs hóps fólks sem vill helga krafta sína kennslustörfum. Við þróun kennaranáms verðum við að nýta mikilvæga reynslu allra sem vilja starfa við kennslu“.

Susan Rafik Hama er lektor við Menntavísindasvið og situr í starfshópnum sem þróar þetta nýja námstilboð. Hún er frá Kúrdistan og segist sækja í reynslu sína sem háskólanemi af erlendum uppruna og nú kennari kennaranema og rannsakandi sem hefur beint sjónum sínum að menntun í fjölmenningarsamfélagi. Hún segir ýmis verkefni hafa verið þróuð á Menntavísindasviði undanfarið sem styðji við nám nemenda af erlendum uppruna:

„Valnámskeiðið Samtal um fagið var sett á laggirnar fyrir leikskólakennaranema sem hafa annað móðurmál en íslensku en það spratt úr jarðvegi samfélagsstyrks Háskóla Íslands sem Kristín Karlsdóttir, dósent í leikskólakennarafræði, fékk sumarið 2020. Ég kenndi á því námskeiði ásamt Renötu Emilsson Pesková aðjunkt, Artem Ingmar Benediktssyni nýdoktor og Önnu Katarzynu Wozniczka doktorsnema. Við fengum þar dýrmæta innsýn í þann stuðning sem nemendur Menntavísindasviðs af erlendum uppruna þurfa í náminu og hana nýtum við áfram.“

Kolbrún segir mikinn auð felast í nemendum og starfsfólki sviðsins af erlendum uppruna. Í náminu séu nú þegar nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og innan menntakerfisins starfi dýrmætur hópur starfsfólks af erlendum uppruna. Það sé því löngu tímabært að þróa kennaranám sem styðji betur við – og hvetji fólk til að takast á við kennaranám og nám á sviði menntavísinda.

Allir nemendur þurfa að upplifa að þeir tilheyri og að þeir fái líka svigrúm til að byggja á sinni reynslu.

„Við höfum ótal dæmi um það að nemendur með annan tungumála- og menningarbakgrunn standa sig afar vel í kennaranámi. Það er ákaflega mikilvægt að fjölga kennurum af erlendum uppruna og við ætlum að kynna þetta nýja nám markvisst fyrir bandamönnum okkar á skólaskrifstofum og í sveitarfélögum. Við vonumst til þess að sveitarfélögin hvetji starfsfólk sitt til að afla sér menntunar og veiti þeim nauðsynlegt svigrúm til að takast á við það.“

Hanna Óladóttir er lektor í íslensku við deild faggreinakennslu og situr í starfshópnum sem tekst á við að þróa nýja námið. Hún segir samstarf við íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði mikilvægan lið í því að búa námið sem best úr garði:

„Þar er löng reynsla og mikil þekking á kennslu fullorðinna í íslensku sem öðru máli. Það er því mikilvægt að vera í góðu samstarfi til að námið verði sem öflugast. Svo að nemendurnir geti stundað árangursríkt kennaranám á íslensku þurfa þeir að fá þá kennslu og stuðning í tungumálinu sem kemur þeim hvað mest til góða. Þess vegna er svo áríðandi að nýta alla þá þekkingu á málaflokknum sem þegar er til staðar innan háskólans, bæði á Menntavísinda- og Hugvísindasviði.“

Virkt námssamfélag skiptir sköpum

Kristín segir að reynslan sýni að starfsfólk af erlendum uppruna á öllum skólastigum geti verið mikilvægir tengiliðir milli heimila og skóla. Námið hafi tvíþætt markmið, annars vegar að styrkja íslenskukunnáttu nemenda en hins vegar að efla skilning þeirra á menningu og gildum í íslensku menntakerfi:

„Í þessu námi horfum við til þess að styðja við nemendur svo þeir geti miðlað bæði málinu og menningunni, jafnframt því að tengja námið mikilvægum gildum í íslensku skólastarfi. Þar horfum við til foreldrasamstarfs, samstarfs ólíkra fagstétta og barnamenningar, svo fátt eitt sé talið“

Í þessu verkefni verður lögð áhersla á að nemendur kynnist vel innbyrðis og að til verði virkt námssamfélag meðal þeirra, enda sýna rannsóknir fram á mikilvægi tengsla milli háskólanema til að tryggja vellíðan og árangur í námi. Susan segir þetta afar mikilvægan þátt að horfa til þegar nám og stuðningur er skipulagt:

„Allir nemendur þurfa að upplifa að þeir tilheyri og að þeir fái líka svigrúm til að byggja á sinni reynslu. Nemendur með erlendan bakgrunn búa yfir reynslu og auðlindum úr skólastarfi frá sínu heimalandi og þekkja menninguna heiman frá sér. Í náminu er mikilvægt að þeir fái tækifæri til að bera saman og skilja hvað er líkt og ólíkt.“

Það er ákaflega mikilvægt að fjölga kennurum af erlendum uppruna og við ætlum að kynna þetta nýja nám markvisst ...

Átaksverkefnið hefst í haust í tilraunaskyni og markmiðið er að námið geti verið hluti af fimm ára kennaranámi, en ekki viðbót við það. Aðrir háskólar sem bjóða upp á kennaranám eigi einnig að geta beint sínum nemendum í námskeiðin og stefnan er sú að þeir geti nýtt það sem hluta af sínu kennaranámi, í góðu samstarfi háskólanna. Oddný Sturludóttir, aðjunkt og verkefnastjóri við Menntavísindasvið, leiðir verkefnið og segir mikilvægt samtal vera framundan við hóp bandamanna Menntavísindasviðs um kennaranám í fjölmenningarsamfélagi:

„Við viljum kynna verkefnið vel fyrir þeim stóra hópi fólks sem ber fyrir brjósti þróun og nýsköpun í menntun í fjölmenningarsamfélaginu Íslandi, hvort sem það eru sveitarfélög, samtök eða aðrar stofnanir. Stjórnvöld sýna metnað með þessu framtaki og hafa einnig einsett sér í nýrri menntastefnu að þróa betri stuðning við nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, sem því miður sækja síður í háskólanám en jafnaldrar þeirra.

Til viðbótar við þetta nýja einingabæra nám hafa stjórnvöld falið Menntafléttunni, sem er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Kennarasambands Íslands, að þróa óeiningabær námskeið sem ætluð eru starfsfólki leik- og grunnskóla sem hefur fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Öll eru þessi skref mikilvæg til að kveikja neista og byggja upp færni og þekkingu þessa mikilvæga hóps í menntakerfinu okkar.“

Kynning á náminu helst í hendur við kynningu á grunnnámi kennaranáms á vordögum, en ætlunin er að bjóða upp á námskeið og stuðning strax næsta haust.

Kristín segir tilhlökkun ríkja á Menntavísindasviði að takast á við þetta mikilvæga verkefni: „Íslenskt samfélag er fjölmenningarsamfélag og það viljum við að nám á Menntavísindasviði endurspegli.“

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2022. Lesa Skólavörðuna.