Mikilvægi starfsþróunar og símenntunar
Leikskólinn hefur þróast mikið á síðustu árum og var skilgreindur sem fyrsta skólastigið árið 2004. Í lögum um leikskóla frá árinu 2008, sem byggð er á eldri lögum, kemur eftirfarandi fram:
- Leikskólinn er fyrsta skólastigið í skólakerfinu og er fyrir börn undir skólaskyldualdri. Leikskóli annast að ósk foreldra uppeldi, umönnun og menntun barna á leikskólaaldri (Lög um leikskóla 2008, 1. grein, 2008).
Í símenntunaráætlun Kennarasambandsins kemur fram að menntun er æviverk og mikilvægt að framboð á símenntun sé nægilegt og í sífelldri þróun. Starfsþróun kennara er lykilatriði í þeirri þróun menntamála sem við viljum sjá á komandi árum.
Þegar talað er um símenntun leikskólakennara er átt við viðbótar- og framhaldsmenntun sem stendur til boða að loknu formlegu leikskólakennaranámi. Það má segja að símenntun leikskólakennara sé ævimenntun þar sem krafa er um stöðugri starfsþróun sem er bæði fjölbreytt og einstaklingsmiðuð. Símenntun getur verið bæði formleg og óformleg, t.d styttri námskeið, ráðstefnur, handleiðsla og hvers konar nám sem hæfir áhuga og þörf leikskólakennara fyrir að þróa starfshæfni sína.
Í því samfélagi sem við búum við í dag er mikilvægt að leikskólakennarar hafi stuðning og aðstæður til endurmenntunar, þar sem hún getur gefið okkur skýrari faglega sýn og veitt okkur nýjungar í starfi. Endurmenntun getur ýtt undir hugmyndir okkar um fagmennsku hvort tveggja sem einstaklingur eða í leikskólastarfinu. Símenntun getur styrkt sjálfstraust og starfsánægju einstaklinga.
Ég sem leikskólakennari í Mastersnámi hjá HÍ tel að símenntun sé mjög mikilvæg og jákvæð reynsla inn í starfið. Ég hef getað nýtt mér námið til þess að þróa mig enn frekar í starfi mínu. Endurmenntun gefur betri heildarmynd af skólastarfinu og eykur víðsýni þar sem í náminu færðu tækifæri til að kynnast kennurum á öllum skólastigum. Þegar skólastigin koma saman aukast gæðin og það ýtir frekar undir samstarf milli skólastiga. Kennarar í endurmenntun fara að bera saman bækur sínar og nýta sér upplýsingar og reynslu annarra kennara.
Því vil ég hvetja alla til þess að kynna sér endurmenntun og nýta sér tækifærin sem eru til staðar, þar sem endalausir möguleikar eru í boði. Endurmenntun er eitt það mikilvægasta sem við getum tekið okkur fyrir hendur í starfi og okkar eigin lífi. Við sem einstaklingar eigum alls ekki að láta þetta tækifæri framhjá okkur fara.
Endurmenntun endurnærir mann, brýtur upp hefðbundið líf manns og gefur aukinn kraft til þess að halda áfram með ferskar og nýjar hugmyndir að góðu starfi.
Halla Ösp Hallsdóttir,
deildarstjóri á leikskólanum Baugi í Kópavogi