Mikilvægi kynfræðslu og jafnréttisfræða í skólastarfi

Fréttir|15. apríl 2025

Margt virðist benda til að jafnréttis- og kynfræðslu sé ekki sinnt nægilega vel í öllum skólum, segir Kristín Blöndal Ragnarsdóttir, kennslufulltrúi mannréttinda í grunnskólum Hafnarfjarðar og kennari.

Undanfarin ár hefur orðið vitundarvakning um mikilvægi jafnréttisfræðslu í skólastarfi og það dylst engum að kynfræðslu nemenda þarf að bæta stórlega. Kynfræðsla verður hins vegar ekki góð nema með jafnréttissjónarmið að leiðarljósi og jafnréttisfræðsla eða kynjafræði verður heldur ekki góð án þess að þar sé komið inn á kynheilbrigðismál. Margt virðist benda til að þessari fræðslu sé ekki sinnt nægilega vel í öllum skólum. Sama hvort litið er til hæfniviðmiða, grunnþátta menntunar eða jafnréttislaga þá er ljóst að margir skólar eru sannarlega ekki að uppfylla skyldur sínar.

Kynfræðsla og kynjafræði í stundaskrá í Hafnarfirði

Frá 2017 hefur alhliða kynfræðsla og kynjafræði verið kennd sem sérstakt fag í stundatöflu nemenda í Lækjarskóla í Hafnarfirði og síðar óskaði ungmennaráð Hafnarfjarðar eftir slíkri fræðslu fyrir alla nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar. Árið 2022 var greinarhöfundur fenginn til að stýra starfshópi um innleiðingu á kynjafræði og kynfræðslu í námskrá grunnskóla Hafnarfjarðar.

Strax var hafist handa við að stofna starfshóp sem vann saman að gerð námskrár fyrir alla árganga grunnskólans en í starfshópinn voru valdir kennarar sem höfðu ýmist þekkingu og/eða áhuga á að sinna þessari fræðslu. Starfshópurinn vann fram á vorið 2023 og sendi þá frá sér námskrá með hæfniviðmiðum fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Þá var einnig lagt upp með að nemendur í unglingadeildum grunnskóla Hafnarfjarðar, 8.-10. bekk, væru með reglubundna tíma í kynjafræðum og kynfræðslu í stundaskrá sinni frá haustönn 2023.

Haustið 2023 byrjaði með því að starfshópurinn sat tveggja daga námskeið um kynheilbrigðisfræðslu og jafnréttiskennslu. Einnig fengu nýliðar í grunnskólum Hafnarfjarðar fræðslu um jafnrétti í skólastarfi enda á jafnréttisfræðsla að fléttast inn í allt skólastarf sama hvort er í skólastofunni eða annars staðar.

Tengsl og traust milli nemenda og kennara

Skólaárið hófst og nemendur í 8.-10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar fengu kynfræðslu og kynjafræði inn í stundaskrá sína. Síðan þá hafa ýmsar áskoranir mætt kennurum, eins og bakslagið í auknum hinseginfordómum haustið 2023, sem hafa þó orðið til þess að
kennarar áttuðu sig enn frekar á mikilvægi þess að innleiða jafnréttisfræðsluna í alla skóla.

Reglulega standa kennarar frammi fyrir áskorunum sem starfshópurinn hefur svo í sameiningu fundið lausnir á og innan hans hefur því skapast þekking og samstaða sem er ómetanleg. Hópurinn hittist mánaðarlega til skrafs og ráðagerða og hefur m.a. fengið utanaðkomandi fræðslu, ásamt því að deila reynslusögum af verkefnum sem hafa heppnast vel.

Til þess að jafnréttisfræðsla geti farið fram er augljóst að það þarf kennara sem hafa fengið menntun á sviði jafnréttisfræða

Starfshópurinn er frábært lærdómssamfélag og mikilvægur þáttur í þessari innleiðingu og ómetanlegt að geta rætt saman um erfið mál. Ég kalla það erfið mál því á milli kennara sem sinna fræðslunni og nemenda myndast öðruvísi tengsl og traust sem verður til þess að nemendur leita frekar til kennara með erfið persónuleg mál.

Á réttri leið

Nú er hafið annað skólaárið þar sem nemendur í unglingadeildum í grunnskólum Hafnarfjarðar hljóta reglubundna menntun í kynheilbrigði og jafnréttisfræðum og verkefnið gengur vel. Þrátt fyrir að innleiðing á kynfræðslu og kynjafræði sé byrjuð í grunnskólum óska nemendur enn eftir meiri fræðslu, eins og fram kom á fundi með ungmennum í fundaröð Hafnarfjarðar-bæjar sem ber nafnið Við erum þorpið. Við erum því handviss um að við séum á réttri leið þó að alltaf megi gera betur og verkefnið sé enn í þróun.

Jafnrétti verður aldrei náð nema með því að efla jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum og er hún því lykillinn að því að tryggja að öll börn búsett á Íslandi fái menntun í þessum fræðum. Í draumaheimi væri ekki þörf á sérstakri menntun í jafnrétti en því miður er það svo í samfélagi þar sem tækifærin sem bjóðast á lífsleiðinni eru háð því hvar og hverjum viðkomandi fæðist.

Jafnréttisfræði í kennaranámi

Þegar þetta er skrifað liggur fyrir á vef Alþingis tillaga um þingsályktun um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttis-málum fyrir árin 2025-2028 og er tillagan í 44 liðum. Það er að sjálfsögðu hið besta mál og ljóst að ráðafólk þjóðarinnar telur þörf á að stórbæta jafnréttismálin í landinu. Slíkt verður hins vegar aldrei gert nema byrjað sé á því að leggja áherslu á jafnréttis-menntun á öllum skólastigum.

Til þess að jafnréttisfræðsla geti farið fram er augljóst að það þarf kennara sem hafa fengið menntun á sviði jafnréttisfræða. Þá liggur beinast við að skoða kennaranámið, en eins og það er sett upp hjá Háskóla Íslands hefur enn ekki tekist að gera jafnréttisáfanga að skyldu. Það er því tilvonandi kennurum valfrjálst hvort þeir taki áfanga í jafnréttisfræðum en gleymum því ekki að jafnrétti er einn af sex grunnþáttum menntunar.

Fræðsla lausn við fordómum

Það er von mín að þetta verkefni fái að vaxa og dafna áfram. Upplifun mín er að verkefnið hafi fengið frábærar undirtektir og vakið athygli fyrir það hversu mikilvægt og þarft það er samfélaginu. Fyrsta árið hefur verið viðburðaríkt og gefið mér og okkur í starfshópnum mikilvæga reynslu sem hægt er að byggja á.

Fræðsla í þessum málaflokki er lykilatriði til þess að draga úr fordómum og mismunun ásamt því að draga úr ofbeldi sem er því miður stórt vandamál á meðal ungs fólks í dag. Við höldum því áfram keik og vonum að önnur sveitarfélög taki Hafnarfjörð sér til fyrirmyndar á meðan enn hefur ekki tekist að gera kynfræðslu og kynjafræði að skyldu á öllum skólastigum.