Mikilvæg atriði í þjónustu KÍ að sumri

Fréttir|1. júlí 2022

Skrifstofa Kennarasambandsins verður lokuð, samkvæmt venju, í þrjár vikur í sumar. Lokun hefst 11. júlí og starfsfólk snýr aftur til starfa þriðjudaginn eftir verslunarmannahelgi.

Þjónustusvið sjóða Kennarasambandsins vill vekja athygli félagsmanna á nokkrum atriðum nú þegar sumarið er gengið í garð.

Formleg sumarlokun KÍ hefst mánudaginn 11. júlí og stendur venju samkvæmt í þrjár vikur. Skrifstofa KÍ verður opnuð á nýjan leik að morgni þriðjudagsins 2. ágúst.

Þjónustufulltrúar munu eftir bestu getu afgreiða allar umsóknir, sem berast fyrir 29. júní, áður en sumarlokun hefst. Þetta á við um sjúkrasjóð, Vonarsjóð FG/SÍ, Vísindasjóð FL/FSL og Starfsmenntunarsjóð FTST.

Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð á meðan á sumarlokun stendur. Símatími verður alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:00, í síma 595 1195 og netfang orlof@ki.is.

Þjónustufulltrúar Vísindasjóðs FF/FS munu eftir bestu getu afgreiða allar umsóknir, sem berast fyrir 1. júlí, áður en sumarlokun hefst. Netfang Vísindasjóðs er visffogfs@ki.is.

Netfang sjóðasviðs er sjodir@ki.is.