Mikill meirihluti samþykkir kjarasamning FF og FS
Fréttir|24. apríl 2020

Af þeim sem greiddu atkvæði samþykkti 91% félagsmanna í FF og FS nýjan kjarasamning.
Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta. Skrifað var undir kjarasamninginn í húsakynnum ríkissáttasemjara 17. apríl síðastliðinn. Gildistími samningsins er til 31. desember 2020.
Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn hófst klukkan 12:00 þriðjudaginn 21. apríl og lauk klukkan 12:00 í dag, föstudaginn 24. apríl.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru eftirfarandi:
- Á kjörskrá voru: 1.492
- Alls greiddu 897 atkvæði eða 60,12%
- Já sögðu 822 eða 91,64%
- Nei sögðu 54 eða 6,02%
- Auðir seðlar 21 eða 2,34%