Mikill áhugi á orlofshúsum í sumar

Fréttir|17. mars 2021

Þeir sem ekki fengu úthlutað ættu að fylgjast með á föstudaginn.

Um 1.100 félagsmenn sóttu um vikuleigu hjá Orlofssjóði Kennarasambands Íslands fyrir sumarið 2021. Í gær rann út umsóknartímabilið en það hafði staðið yfir frá 26. febrúar. Þessir 1.100 félagsmenn sóttu um rúmlega 5.000 vikuleigur og er aðsóknin mjög ánægjuleg. Af þessum tæplega 1.100 fengu 255 úthlutaðri vikuleigu.

Þeir félagsmenn sem hafa fengið úthlutun hafa fengið tölvupóst þar um, en þeir hafa tíma til hádegis föstudaginn 19. mars til að ganga frá greiðslu. Þeir sem sóttu um úthlutun en fengu ekki ættu að fylgjast með orlofsvefnum kl. 13:00 föstudaginn 19. mars, en þá verða þær leigur sem ekki voru greiddar í fyrstu úthlutun settar aftur í leigu. Þá gildir fyrirkomulagið „Fyrstur kemur, fyrstur fær“.

Opnað verður fyrir bókanir flakkara þriðjudaginn 23. mars. kl. 18:00, sjá nánar hér.