Mikil starfsánægja meðal kennara samkvæmt TALIS

Mikilvægt er að beina sjónum að því að gera kennarastarfið sjálfbært og aðlaðandi í gegnum allan starfsferilinn, ekki aðeins er kemur að nýliðun. Nánast allir kennarar hér á landi hafa tekið þátt í starfsþróun. Þeir segja þó að auka megi gæði og gagnsemi starfsþróunar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirgripsmikilli skýrslu TALIS.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt landskýrslu fyrir Ísland um niðurstöður TALIS-rannsóknarinnar 2024. Niðurstöðurnar sýna mikla starfsánægju meðal kennara á Íslandi að launum undanskildum en draga fram mikilvægi þess að skapa aðstæður til að halda kennurum í starfi og bæta gæði kennaramenntunar og starfsþróunar.
TALIS er stærsta alþjóðlega rannsókn á kennurum, skólastjórnendum og kennsluháttum og voru niðurstöður rannsóknarinnar birtar af Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) í dag. Ísland hefur tekið þátt í rannsókninni frá upphafi eða frá 2008 en hún er nú lögð fram á sex ára fresti. Gagnaöflun á Íslandi átti sér stað frá mars til maí í fyrra, 2024.
Frétt um birtingu skýrslunnar var birt á vef Stjórnarráðsins í morgun. Þar eru eftirtaldar niðurstöður dregnar fram:
- Starfsánægja er lykilatriði: Kennarar með háa starfsánægju eru 80% ólíklegri til þess að ætla að hverfa úr starfi á næstu fimm árum. Stefnumótun verður að forgangsraða aðstæðum sem byggja upp og viðhalda starfsánægju kennara.
- Varðandi starfsánægju er hlutfall kennara sem segjast vera ánægðir með störf sín 94 prósent (OECD: 89 prósent). Þetta hlutfall hefur ekki breyst síðan 2018. Um 21 prósent kennara segjast upplifa mjög mikla streitu í starfi (OECD: 19 prósent); 5 prósent segja að starf þeirra hafi mjög mikil neikvæð áhrif á andlega heilsu þeirra (meðaltal OECD: 10 prósent) og 5 prósent segja að það hafi mjög mikil neikvæð áhrif á líkamlega heilsu þeirra (OECD: 8 prósent). Milli áranna 2018 og 2024 lækkaði hlutfall kennara sem upplifa mjög mikla streitu í starfi um 5 prósentustig.
- Hveitibrauðsdaga-vandinn: Ánægja með laun og starfsaðstæður er greinilega hærri meðal nýrra kennara en dalar hratt með reynslu. Þetta bendir til þess að halda þurfi kennurum í starfi eftir fyrstu fimm árin, ekki bara laða þá að starfinu.
- Áhrifamunur í starfsþróun: Mikil þátttaka í starfsþróun skilar ekki sjálfkrafa árangri. Stefnumótun þarf að leggja áherslu á gæði fremur en magn í starfsþróun.
- Vannýtt kennslufræðileg forysta: Mikið sjálfræði skólastjóra er ekki að fullu nýtt til kennslufræðilegrar leiðsagnar. Tækifæri er til að byggja á sterku trausti innan kennarahópsins og umbreyta því í kerfisbundnar umbætur.
- Ósamræmi menntunar og kennslu: Verulegur hluti kennara kennir námsgreinar sem ekki voru hluti af kennaramenntun þeirra. Þetta er áhyggjuefni sem þarfnast athygli, sérstaklega í ljósi þess að nýir kennarar segja að kennaramenntun undirbúi þá verr en áður.

Aðeins 50% nýrra kennara telja að kennaramenntun hafi undirbúið þá vel undir innihald faggreina, segir í skýrslu TALIS
Leiðir fram á við
„Íslenska menntakerfið stendur á tímamótum. Áherslur undanfarinna ára á að auka fjölda kennaranema og fjölga útskrifuðum kennurum hafa borið ákveðinn árangur í nýliðun. Nú þarf að beina sjónum að því að gera kennarastarfið sjálfbært og aðlaðandi gegnum allan starfsferilinn," segir orðrétt í Landsskýrslunni fyrir Ísland.
Í þessu ljósi eru eftirtalin atriði tiltekin:
- Endurskoðun launakerfis til að tryggja betri launaþróun yfir starfsferilinn
- Markvissari starfsþróun sem sniðin er að skilgreindum þörfum og þar sem áhrif eru metin kerfisbundið
- Styrking kennslufræðilegrar forystu sem nýtir mikið sjálfræði og traust til umbóta í kennsluháttum
- Skýrari tengsl milli kennaramenntunar og raunverulegra þarfa innan skólastofunnar
- Aukna samfélagslega virðingu fyrir kennarastarfinu
Fjallað um samfélagslega ímynd kennarastarfsins en þar segjast aðeins 19 prósent íslenskra kennara telja að störf þeirra séu metin í samfélaginu. Tölur frá hinum Norðurlöndunum eru tvenns konar; rétt tæplega helmingur danskra og finnskra kennara telur störf sín metin. Sænskir kennarar eru ekki eins kátir en þar telja aðeins 15 prósent hópsins að kennarastarfið sé metið í samfélaginu.
Útgáfa OECD
- Alþjóðlega skýrslan í heild sinni (Results from TALIS 2024: The State of Teaching)
- Túlkun á niðurstöðum (á ensku) (Insights and Interpretations)
- Landsyfirlit um Ísland (á ensku og íslensku) (Partipant note)
- Gagnvirk tölfræði (Power BI) (Statistical compendia)