Mikil samstaða meðal grunnskólakennara
Grunnskólakennarar fjölmenntu á baráttufund á Ingólfstorgi í morgun. Vinnustöðvun er í gildi hjá grunnskólakennurum í dag og því engin kennsla í grunnskólum landsins. Ólafur Loftsson, formaður FG, og Þórður Hjaltested, formaður KÍ, fluttu ávörp á fundinum. Pollapönk flutti nokkur lög.
Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem fullum stuðningi er lýst yfir við stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara í samningaviðræðum við sveitarfélögin.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Baráttufundur grunnskólakennara á Ingólfstorgi krefst þess að sveitarstjórnarmenn samþykki þegar þá sanngjörnu kröfu að laun grunnskólakennara verði leiðrétt. Engin rök eru fyrir því að laun kennara séu lægri en hjá öðrum hópum sem sinna sambærilegum verkefnum, bera sömu ábyrgð og þar sem krafist er fimm ára háskólamenntunar.
Grunnskólakennarar hvetja til að gengið verði til samninga hið fyrsta svo ekki þurfi að koma til þeirrar röskunar á skólastarfi sem fylgja mun boðaðri vinnustöðvun. Hún mun hafa áhrif á 43 þúsund nemendur og fjölskyldur þeirra. Slík aðgerð er neyðarúrræði sem kennarar eru nú þvingaðir í vegna seinagangs viðsemjenda við samningsgerðina. Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir í 2 ár og nú er þolinmæði þeirra á þrotum.
Í stað þess að leiðrétta launin tala sveitarstjórnamenn reglulega um að skólarnir á Íslandi séu dýrir og vilja finna leiðir til að spara. Slíkt telja kennarar ótækt í ljósi þess að grunnskólanum er gert að þjónusta alla nemendur, óháð búsetu, félagslegri stöðu eða námsgetu. Það er inntak stefnunnar „skóli án aðgreiningar“. Kennarar hafa lagt sig fram við að láta skólastarfið ganga og margir þeirra vinna nú þegar meira en þeir fá greitt fyrir. Dýr skóli verður ekki skýrður með háum launakostnaði kennara.
Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara í yfirstandandi viðræðum við Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga.“
Að loknum baráttufundinum gengu fundarmenn fylktu liði yfir Austurvöll og í Ráðhúsið þar sem átti að færa Jóni Gnarr borgarstjóra ályktun fundarins. Grunnskólakennarar koma síðan saman í Framheimilinu við Safamýri.