Mikil breyting að fá ekki að hitta nemendur

Fréttir|13. maí 2020

Skólastarfið er rólegra á tímum COVID19, segir Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Borgarholtsskóla.

„Stærsta breytingin er að fá ekki að hitta nemendur og fá ekki tilfinninguna fyrir þeim," segir Sandra Hlín Guðmundsóttir, náms- og starfsráðgjafi í Borgarholtsskóla en hún er áttundi viðmælandinn í stuttmyndaröð KÍ þar sem fjallað er um COVID-19 og skólastarf. 

Sandra Hlín segir skólastarfið rólegra en áður enda voru allir nemendur Borgarholtsskóla, sem og í öðrum framhaldsskólum, sendir heim um miðjan mars. Framhaldsskólanemendur ljúka sinni vorönn í fjarnámi að þessu sinni. 

Stuðningi við nemendur hefur verið haldið úti og segir Sandra Hlín ekkert slegið af í þeim efnum. „Stuðningurinn nú og fyrir COVID er svipaður,“ segir hún og bætir við samskiptin hafi eikum farið fram í gegnum síma, hringt hafi verið í mikinn fjölda nemenda. 

Hún segist fegin að önninni ljúki brátt. „Þetta er allt að þyngjast. Þetta er að verða svolítið erfiðara," segir Sandra Hlín. 

Horfið á frásögn Söndru Hlínar


 

Heimildum um einstæða tíma safnað

Útgáfusvið KÍ hefur látið festa á filmu frásagnir kennara, stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa af skólastarfi í miðjum COVID-19 faraldri. Þetta hafa verið einstæðir tímar í skólasögunni þar sem skólafólk hefur lagst á eitt við að tryggja nám og velferð barna og ungmenna. Tekin hafa verið risaskref í tæknimálum í mörgum skólum og líklegt að margt af því sem hefur áunnist muni nýtast í skólastarfi framtíðar, þegar samfélagið fer aftur í fyrra horf. 

Þessi myndbönd hafa þegar verið frumsýnd og ekki annað hægt en að mæla með þeim öllum. Á morgun verður áttunda og síðasta myndbandið frumsýnt; þar kemur formaður KÍ, Ragnar Þór Pétursson, fram. 

 

Jón Páll Haraldsson skólastjóri


Helga Sigríður Þórsdóttir konrektor


Aron Örn Óskarsson tónlistarskólakennari


Sandra Jónasdóttir grunnskólakennari


Gróa Sigurðardóttir leikskólakennari


Ásta Kristín Svavarsdóttir leikskólastjóri


Viðar Hrafn Steingrímsson framhaldsskólakennari