Mikil ánægja með dvöl í orlofshúsum KÍ

Níutíu prósent þeirra sem leigðu eign hjá Orlofssjóði KÍ í sumar voru mjög eða frekar ánægð með dvölina. Mest var ánægjan með dvöl í húsum sjóðsins í Vestmannaeyjum og Vörðuleiti í Reykjavík, eða 100%, og næstmest með leigueignir, eða 93%, og Flúðir, eða 90%. Síst voru svarendur ánægðir með dvöl á Bifröst, eða 77%.
Þetta sýna niðurstöður þjónustukönnunar Orlofssjóðs sem lögð var fyrir þau sem dvöldu í húsi sjóðsins á tímabilinu 10. júní til 20. ágúst 2022, eða þegar nýting eignanna er sem mest.
Einnig var spurt út í einstaka þætti sem tengdust dvölinni. Í ljós kom að flest, eða 87% svarenda, voru mjög eða frekar ánægð með ástand eignar og 86% með þrif. 88% sögðust ánægð með leiðbeiningar og 87% með svefnaðstöðu.
Könnunin var lögð fyrir alla þá sem leigðu hús Orlofssjóðs á tímabilinu, eða 1.139 manns. Svarhlutfallið var tæplega fjörutíu prósent, sem þykir einstaklega gott í þjónustukönnun sem þessari. Margir þátttakendur nýttu einnig athugasemdagluggann til að koma með hugmyndir og ábendingar.

„Það er greinilegt að fólk hefur skoðun og vill koma sínum athugasemdum og upplifun á framfæri. Það erum við hjá Orlofssjóði þakklát fyrir. Það hjálpar okkur við okkar störf og nýtist við gerð viðhalds og endurnýjunar áætlana.“ – Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs KÍ.
Ferðablaðið endurvakið
Vafalaust hafa margir saknað Ferðablaðsins sem var nokkurs konar vorboði. Ferðablaðið kom ekki út á síðasta kjörtímabili en ákveðið var á nýliðnu þingi Kennarasambandsins að endurvekja ritið. Ferðablaðið verður þó ekki gefið út á pappír heldur gerð rafræn útgáfa sem vonandi fellur félagsmönnum í geð og auðveldar skoðun á þeim fjölmörgu orlofskostum sem í boði eru.
Eftir sem áður er alltaf gott að skoða Orlofsvef KÍ og gagnvirka orlofskortið sem er að finna á vef KÍ.
Sjá einnig umfjöllun um starfsemi Orlofssjóðs í vetur á síðu 46 í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.