Miðlunartillaga ríkissáttasemjara samþykkt

Fréttir|10. febrúar 2017

Atkvæðagreiðsla um miðlunartillöguna hófst föstudaginn 3. febrúar og lauk klukkan 13 í dag, föstudaginn 10. febrúar.

Miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið samþykkt í atkvæðagreiðslu. Miðlunartillagan var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. 

Á kjörskrá voru 492 og greiddu 347 atkvæði, eða 70.5%.

  • Já sögðu 309, eða 89%.
  • Nei sögðu 29, eða 8%.
  • Auðir seðlar voru 9 eða 3%.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti einnig miðlunartillöguna og er því kominn á kjarasamningur milli aðila.

FT hefur verið án kjarasamnings síðan í nóvember 2015 en gildistími hins nýja samnings er frá 1. janúar 2017 til 31. mars 2018. 

Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari lagð miðlunartillöguna fram 31. janúar síðastliðinn en þá taldi hún ljóst að frekari sáttaumleitanir bæru ekki árangur. Í tilkynningu ríkissáttasemjara sagði að samkomulag hefði náðst um öll meginatriði fyrir utan að því hvaða leyti samningalaust tímabil yrði bætt og gildistíma samningsins.

Atkvæðagreiðsla um miðlunartillöguna hófst föstudaginn 3. febrúar og lauk klukkan 13 í dag, föstudaginn 10. febrúar.