Miðlunartillaga í kjaradeilu kennara og stjórnenda í tónlistarskólum

Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í deilu Kennarasambands Íslands vegna Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í deilu Kennarasambands Íslands vegna Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kjarasamningur tónlistarkennara rann út þann 31. október 2015 og var málinu vísað til ríkissáttasemjara þann 27. apríl 2016.
Í tilkynningu frá ríkissáttasemjara kemur fram að haldnir hafi verið 20 árangurslausir fundir í málinu. Þar segir ennfremur:
„Telur ríkissáttasemjari að frekari sáttaumleitanir beri ekki árangur. Samkomulag hefur náðst á milli samningsaðila um öll meginatriði, að undanskildu því að hvaða leyti samningslaust tímabil er bætt og gildistíma samningsins. Því hefur ríkissáttasemjari lagt fram miðlunartillögu til lausnar deilunni sem byggir á fyrirliggjandi samkomulagsdrögum auk þess sem tekið er á útistandandi ágreiningi.
Félagsmenn í FT annars vegar og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hins vegar greiða atkvæði um miðlunartillöguna.
Miðlunartillagan verður send til félagsmanna FT og stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga á rafrænu formi og atkvæði verða greidd rafrænt.
Atkvæðagreiðslan hefst svo skjótt sem verða má og henni lýkur kl. 13:00 föstudaginn 10. febrúar 2017. Ríkissáttasemjari er viðstaddur þegar niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er kunngjörð ásamt einum fulltrúa frá hvorum aðila.
Miðlunartillagan verður ekki birt öðrum en þeim sem hlut eiga að máli fyrr en atkvæði hafa verið greidd um hana, sbr. 1. mgr. 29. gr. l. 80/1938 og er innihald hennar háð trúnaði þar til niðurstaða liggur fyrir“ segir í tilkynningu sem ríkissáttasemjari sendi frá sér í kvöld.