Metþátttaka í forsíðumyndakeppni Orlofssjóðs

Fréttir|10. febrúar 2015

Á fjórða hundrað ljósmyndir hafa borist í keppnina um forsíðumynd Ferðablaðsins 2015. Þátttakan fór fram úr björtustu vonum og ljóst að félagsmenn KÍ eru duglegir að taka myndir. Skilafrestur rann út 7. febrúar síðastliðinn en þessa dagana er unnið að útgáfu Ferðablaðsins og ráðgert að blaðið komi út um næstu mánaðamót. 

Veitt verða 30 þúsund króna verðlaun fyrir myndina sem mun prýða forsíðu Ferðablaðsins 2015.