Metfjöldi sótti trúnaðarmannafræðslu

Fréttir|22. október 2025

Vel yfir 200 trúnaðarmenn sóttu árlega fræðslu KÍ nýverið og tóku þátt í virkum samræðum og verkefnum um starfið.

Árlegt fræðslunámskeið Kennarasambands Íslands fyrir nýja og nýlega trúnaðarmenn var haldið fimmtudaginn 16. október síðastliðinn. Um 150 trúnaðarmenn sóttu námskeiðið á Hótel Reykjavík Natura og um 70 tóku þátt í gegnum streymi. Hægt er að skoða myndir frá fræðslunni hér fyrir neðan.

Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambandsins setti fræðsluna og fór yfir réttindi og skyldur trúnaðarmanna. Anna Lilja Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá KÍ, fór ítarlega yfir ráðningar og ráðningartengd mál og lagði bæði kannanir og raunhæf verkefni fyrir þátttakendur sem leiddu til líflegra og gagnlegra umræðna.

Eftir hádegishlé kíkti Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, við og fór yfir stöðu stéttarinnar og kjaramála þessa stundina. Guðjón Ágúst Gústafsson, þjónustufulltrúi Félags leikskólakennara og sérfræðingur í kjara- og réttindamálum, fjallaði að því búnu um orlofs- og fæðingarorlofsréttindi. Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum hjá KÍ, fór yfir EKKO stefnu sem Kennarasambandið tók nýverið upp áður en þátttakendur svöruðu fyrirspurnum frá trúnaðarmönnum undir lok fræðslunnar.

Löng hefð er fyrir þessum trúnaðarmannanámskeiðum. Námskeiðið skiptist í fyrirlestra og hagnýtar æfingar þar sem glímt er við raundæmi sem geta komið upp. Í ár var nýtt námskeiðsfyrirkomulag innleitt, í samræmi við endurgjöf trúnaðarmanna frá því í fyrra, og efni fræðslunnar skipt upp í tvö námskeið, A og B hluta, sem svo eru endurteknir annað hvert ár. Þannig gefst meiri tími í umfjöllun hvers þáttar og fyrir fyrirspurnir trúnaðarmanna. Í ár fór A-hluti fram, það er, fræðsla um réttindi og skyldur trúnaðarmanna, ráðningarmál og orlof.