Merkilegur handritafundur í Kennarahúsi

Fréttir|26. mars 2021

Saga barnakennara er tilbúin til prentunar. Handritið er að vísu hálfrar aldar gamalt.

Frágangur á skjölum er eitt þeirra verkefna sem fylgdi flutningi Kennarasambandsins úr gamla Kennarahúsinu yfir í Borgartún. Við slíkan skjalafrágang kemur ýmislegt í ljós, enda merk saga kennarastéttarinnar varðveitt hjá KÍ.

Eitt af því sem fannst í gömlum skjölum var fullbúin bók, nánar tiltekið Saga íslenskra barnakennara á árabilinu 1921 til 1971. Höfundur ritsins er Pálmi Jósefsson og segir hann í formálsorðum að hann hafi verið fenginn til verksins síðla árs 1970 og hugmyndin hafi verið að gefa bókina út ári síðar, eða á 50 ára afmæli Sambands íslenskra barnakennara.

Eins og við er að búast er saga barnakennara víðfeðm og fjallað um margvísleg málefni; svo sem lagaumgjörð, kennaranám, aðbúnað og gerð kennsluefnis. Kennarar höfðu líka skoðanir á samfélagsmálum, svo sem Þorskastríðinu og handritamálinu. Þá er fjallað um Ríkisútvarpið nokkrum sinnum, en árið 1934 samþykkti ársþing barnakennara að vinna að því að útvarpið yrði „mjög notað í þágu uppeldis- og skólamála“. Um þetta átti eftir að álykta oft næstu áratugina. Árið 1970 ályktaði 21. fulltrúaþing S.Í.B. og sagði fjölmiðla þjóðarinnar hafa „brugðist skyldu sinni við uppeldis- og skólamál landsins. Þingið telur það ekki eitt fréttnæmt og í frásögur færandi, sem miður kann að fara í uppeldi barna og unglinga“.

Þingið lagði áherslu á að fjölmiðlar gætu haft mjög „örvandi áhrif á uppeldismál með því að halda á loft þeim þeim margvíslegu störfum, sem unnin eru innan veggja skólanna af nemendum og kennurum“.

Saga barnakennara er tilbúin í próförk. Hvort verður af ­útgáfu hennar skal ósagt látið en handritið verður varðveitt áfram.

 

Greinin var birt í efnisflokknum Einu sinni var í Skólavörðunni, 1. tbl. 2021