Mentor fyrirkomulag gegn brottfalli
Fréttir|10. nóvember 2014
Nýr vikupóstur Félags framhaldsskólakennara hefur verið birtur á heimasíðu félagsins. Þar fjallar Unnar Örn Þorsteinsson, framhaldsskólakennari í Flensborgarskólanum um hugmyndir Margo Murrey sem settar eru fram bókinni Beyond the Myths and Magic of Mentoring. Þar segir að nemendur í öllum skólakerfum ættu að eiga sér "mentor" sem m.a. meti framfarir nemenda og ákveði hvenær settum markmiðum varðandi hæfni, færni og leikni sé náð. Þetta kerfi geti meðal annars aðstoðað framhaldsskólana við að berjast gegn brotfalli. Hægt er að lesa pistil Unnars hér.