Menntun og fagmennska kennara: Fjárfesting til framtíðar?

Fréttir|22. maí 2023

Ester Ýr Jónsdóttir, lífefnafræðingur og framhaldsskólakennari fjallar um þær áskoranir sem kennarasamfélagið stendur frammi fyrir og beina tengingu þeirra við kjaramál í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.

Heildarlaun sérfræðinga í fræðslustarfsemi eru langt undir meðaltali annarra atvinnugreina, eða sautján prósentum lægri en meðaltalið, og það eru fáir möguleikar á hækkun launa eða framgangi í starfi.

Kennaraskortur blasir við

Að auki blasir við mikill kennaraskortur á næstu árum sökum þess að aðsókn í kennaranám er dræm og brottfall nýrra kennara hátt. Þetta hefur leitt af sér að hlutfall þeirra sem starfa við kennslu án kennsluréttinda hefur hækkað undanfarin ár.

Þó má nefna að aðeins hefur birt til eftir að aðsókn í kennaranám jókst í kjölfar aðgerða sem stjórnvöld gripu til árið 2019 með það að markmiði að auka nýliðun kennara, með átaksverkefninu Komdu að kenna og launuðu starfsnámi á lokaári M.Ed. náms svo dæmi séu tekin.

Útskrifaðir kennarar á Íslandi 2015-2022. Heimild: Stjórnarráð Íslands. 

 

Brottfallshlutfallið helst þrátt fyrir aukna aðsókn

Þrátt fyrir að fleiri sæki í kennaranámið og útskrifist með kennaramenntun hefur brottfallshlutfallið haldist nokkuð jafnt, líkt og töflur 1 og 2 sýna. Það þarf því meira til ef duga skal.

Hlutfall þeirra sem starfa við kennslu í grunnskólum án kennsluréttinda hefur hækkað undanfarin ár og brottfall þeirra er mun hærra en þeirra sem eru kennaramenntaðir (tafla 1).

Tafla 1: Brottfall í grunnskólum 2018-2021. Heimild: Hagstofa Íslands.

Brottfallið hefur sveiflast til og frá yfir þessi fjögur ár, en ekki aðeins farið í eina átt. Svipaða sögu má segja úr leikskólum, það er að segja að brottfallið er mest hjá ófaglærðum (tafla 2).

Tafla 2: Brottfall í leikskólum 2018-2021. Heimild: Hagstofa Íslands.

Og þróunin hefur einnig verið svipuð í framhaldsskólum, hvað varðar til dæmis hækkandi hlutfall þeirra sem starfa án kennsluréttinda (tafla 3).

Tafla 3: Brottfall í framhaldsskólum 2011-2021. Heimild: Hagstofa Íslands.

Áhrif kjarasamninga á starfsþróun kennara

Í töflu 4 má sjá dæmi um þau áhrif sem ákvæði í kjarasamningi getur haft á starfsþróun kennara.

Taflan sýnir fjölda opinna námskeiða í boði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands á árunum 2017-2021 og fjölda umsækjenda hverju sinni. Námskeiðin eru í boði fyrir fólk af vettvangi og eru einingabær. Hægt er að sækja um eitt til tvö námskeið á misseri og flest námskeiðanna eru á framhaldsstigi.

Tafla 4: Aðsókn í opin námskeið MVS.Taflan sýnir fjölda opinna námskeiða í boði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands á árunum 2017-2021 og fjölda umsækjenda hverju sinni.

Taflan geymir vísbendingar um hvaða máli kjarasamningar skipta fyrir starfsþróun, það er að segja, hvað þurfi til að kennarar sinni eigin starfsþróun.

Eins og sést margfaldaðist fjöldi umsókna árið 2017, eða einmitt á sama tíma og nýr kjarasamningur grunnskólakennara var gerður og nám til eininga var talið til hækkunar launa.
Af þessu dæmi má draga þá ályktun að innri hvatar kennara dugi ekki til og að ytri hvatar, líkt og hækkun launa, séu veigameiri þegar kemur að því að sinna eigin starfsþróun. Það má því segja að gríðarlega mikilvægt sé að meta þátttöku í starfsþróun til launa til að stuðla að aukinni fagmennsku.

Til þess þarf skýrar skilgreiningar á því hverskonar starfsþróun leiðir til bættra kjara og hafa ber í huga að starfsþróun er fjölbreytt og víðtækt hugtak. Í dag er einungis umbunað fyrir einingabært nám með hækkun launaflokka og/eða í stofnanasamningum framhaldsskóla þar sem umbunað er í stökum greiðslum fyrir ákveðið margar klukkustundir í starfsþróun og gefur augaleið að það er æði misjafnt eftir skólum hvernig því er háttað.

Starfsþróun minnkar líkur á kulnun og brottfalli

„Starfsþróun felur meðal annars í sér formlegt nám, innleiðingu í starf á fyrsta starfsári, námskeið, rannsóknir á eigin starfi, þátttöku í þróunarverkefnum, ráðgjöf, ráðstefnur, fræðilestur, skólaheimsóknir svo eitthvað sé nefnt. Stefnumiðuð starfsþróun stuðlar að aukinni starfsánægju, hefur áhrif á árangur í starfi og minnkar líkur á kulnun eða brotthvarfi kennara úr starfi.“ Svo hljóðar skilgreining fagráðs um símenntun og starfsþróun kennara á hugtakinu starfsþróun.

Markmið aðgerðar 5 sem snýr að hæfni fagstétta í skólastarfi í aðgerðaáætlun 2021–2024 fyrir Menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030 er að „hæfni kennara, skólastjórnenda og annars fagfólks í skóla- og frístundastarfi mæti hæfnikröfum og breyttum þörfum samfélagsins. Að tengsl kennaramenntunar og starfsþróunar verði efld í því skyni að auka vellíðan og árangur nemenda og stuðla að umbótum, aukinni starfsánægju og gæðum menntakerfisins.“

Ávinningur starfsþróunar felst í öflugri fagmennsku, auknum árangri í starfi, aukinni starfsánægju og minni líkum á brotthvarfi.

Lykilhugtök í aðgerð 5 eru lærdómssamfélag og starfsþróun: „Í lærdómssamfélagi lærir hver af öðrum og hver með öðrum til að bæta árangur af starfi sínu. Styrking lærdómssamfélags er árangursrík leið í starfsþróun kennara og styrkir skóla til umbóta og árangurs.“

Og þar er hugtakið starfsþróun skilgreint enn ítarlegar: „Starfsþróun er samfellt meðvitað og mótað ferli sem leiðir til umbóta og jákvæðrar þróunar. Hún er beintengd daglegu starfi kennara með nemendum og skipulögð í kringum raunveruleg viðfangsefni starfsins. Hún hefur skýran tilgang og markmið og miðar að því að efla færni og þekkingu starfsfólks skóla og auka gæði í starfi. Hún á sér stað í faglegu lærdómssamfélagi, er augljós og samofin hluti daglegs starfs fagfólks skóla og ber einkenni af menningu samfélags í þróun. Hún felur meðal annars í sér formlegt nám, innleiðingu í starf á fyrsta starfsári, námskeið, rannsóknir á eigin starfi, þátttöku í þróunarverkefnum, ráðgjöf, ráðstefnur, fræðilestur og skólaheimsóknir svo eitthvað sé nefnt. Stefnumiðuð starfsþróun stuðlar að aukinni starfsánægju, hefur áhrif á árangur í starfi og minnkar líkur á kulnun eða brotthvarfi kennara úr starfi.“

Ávinningurinn felst þá í öflugri fagmennsku, auknum árangri í starfi, aukinni starfsánægju og minni líkum á brotthvarfi úr starfi auk þess sem kennsla verður eftirsóknarverð.

Fjárfestum í fagmennsku til framtíðar

Framtíðarsýnin sem ég set hér fram er að hluta byggð á 7. gr. reglugerðar um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla sem tók gildi í desember í fyrra (2022) og Menntastefnu [stjórnvalda] til ársins 2030.

Þar segir að kennari búi yfir hæfni til að skapa umbótamiðað lærdómssamfélag, takast á við krefjandi aðstæður sem fylgja starfi með fjölbreyttum hópi nemenda, leysa vandamál og ágreining með lausnamiðuðum hætti, styðja við eigin velferð og annarra og taka ábyrgð á eigin starfsþróun.

Við þetta bæti ég að störf kennara séu eftirsóknarverð og menntastofnanir séu samkeppnishæfar öðrum vinnuveitendum hvað varðar kjör og starfsaðstæður.

Til að ná þessum markmiðum þarf að fjárfesta í fagmennsku. Verjum fé til starfsþróunar – tengjum hana við kjarasamninga – og fjárfestum í fagmennsku til framtíðar!

Ester Ýr Jónsdóttir, lífefnafræðingur og framhaldsskólakennari, flutti ofangreint erindi á fundi Skólamálaráðs sem fór fram 30. mars 2023. Erindið birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.