Menntun, móttaka og menning

Fréttir|17. maí 2024

Þróunarverkefni stjórnvalda, MEMM, eða Menntun Móttaka Menning, er hafið. Með verkefninu á að bæta og samræma móttöku og menntun barna af erlendum uppruna.

Með MEMM er ætlunin að stuðla að inngildingu og virkri þátttöku barna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Verkefnið var kynnt á opnu húsi hjá nýrri Miðstöð menntunar og skólaþjónustu á miðvikudaginn og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri og Einar Þorsteinsson borgarstjóri undirrituðu samkomulag um það.

Verkefnið er liður í heildarsýn ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum og aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu, líkt og segir á vef Stjórnarráðsins. Í krafti nýrrar stofnunar og víðtæks samstarfs er ætlunin að stórefla þjónustu og taka vel á móti og utan um viðkvæman hóp barna.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri og Einar Þorsteinsson borgarstjóri við undirritunina. Mynd: Stjórnarráð Íslands.

 

Um MEMM

MEMM miðar að því að koma á samræmdu verklagi um móttöku og menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn á landsvísu í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og frístundastarfi, segir á vef Stjórnarráðsins. Þá er verkefninu einnig ætlað að þróa og tryggja öfluga ráðgjöf, námsgögn og verkfæri, sem og stuðning til lausnar flóknari aðstæðum. Stuðningur, ráðgjöf og efni tengt verkefninu verður gert aðgengilegt um allt land með áherslu á skólaskrifstofur sveitarfélaga, leik-, grunn- og framhaldsskóla, og frístundastarf þar sem börnin búa og stunda nám.

„MEMM er risastórt skref í að hrinda í framkvæmd aðgerðum ríkisstjórnarinnar í málefnum útlendinga og ná vel utan um hóp barna sem hefur orðið eftir. Við höfum víða aflað dýrmætrar þekkingar og reynslu og safnað upplýsingum um farsæld barna. Nú leggjumst við á eitt með nýrri stofnun og nýjum verkfærum í að efla og samþætta þjónustuna,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, en vinnan styðst við fyrirhuguð lög um inngildandi menntun og lög um námsgögn, nýtt Mælaborð um farsæld barna, nýtt og fjölbreyttara námsmat og nýjan nemendagrunn fyrir gagnadrifið menntakerfi.

MEMM er risastórt skref í að hrinda í framkvæmd aðgerðum ríkisstjórnarinnar í málefnum útlendinga

Auka skólastuðning við nemendur af erlendum uppruna 

Ríkisstjórnin hefur sammælst um auknar heildrænar aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda með áherslu á mannúð, virðingu og jöfn tækifæri. Hluti verkefnisins felst í því að stórauka stuðning við börn af erlendum uppruna, sér í lagi fyrstu þrjú árin eftir komu til landsins, óháð aldri og skólastigi. Stuðningurinn mun taka mið af þörfum og aðstæðum hvers nemenda.  

Auka á stuðning við móttöku og málörvun barna á leikskólastigi, auka á fjármagn við kennslu í íslensku sem annars máls í grunnskólum og fjölga á íslenskubrautum í framhaldsskólum og auka hlutfall samfélagsfræðslu. Einnig stendur til að auka áherslu á þátttöku barna af erlendum uppruna í íþrótta- og tómstundastarfi. Þá verður hlutverk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu styrkt hvað varðar miðlæga skólaþjónustu og námsgagnagerð í þágu barna af erlendum uppruna.