Menntun kennara – stefna og framtíðarsýn

Fréttir|24. september 2026

Skólamálaþing KÍ verður haldið 5. október. Yfirskrift þess verður Menntun kennara – stefna og framtíðarsýn.

Kennarasamband Íslands efnir til árlegs skólamálaþings mánudaginn 5. október. Yfirskrift þingsins að þessi sinni verður Menntun kennara – stefna og framtíðarsýn. Hugmyndin er að horfa fram á veginn og skoða framtíðarsýn þeirra sem koma að menntun kennara.


Erindi flytja

  • Ingimar Ólafsson Waage, deildarstjóri Listkennsludeildar LHÍ
  • Sigríður Margrét Sigurðardóttir, deildarforseti Kennaradeildar HA
  • Freyja Hreinsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ
  • Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ

Þingið verður haldið í húsnæði KÍ, Borgartúni 30, og hefst klukkan 16.15.