Menntun í náttúrufræði rædd á málþingi
Fréttir|28. nóvember 2014
Málþing um náttúrufræðimenntun verður haldið 17.-18. apríl 2015 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði, erindi, smiðjur og pallborð en hún verður auglýst síðar. Kallað verður eftir framlögum í byrjun janúar 2015.
Að þinginu standa:
Rannsóknarstofa um náttúrufræðimenntun við Menntavísindasvið
Félag leikskólakennara
Samlíf félag líffræðikennara
Samtök áhugafólks um skólaþróun.
Frekari upplýsingar eru veittar í netfanginu birgira@hi.is