Menntun er leiðin til farsældar

Fréttir|7. mars 2023

Framtíð skólaþjónustu var umfjöllunarefni á Þjóðfundi mennta- og barnamálaráðherra sem fór fram í Hörpu 6. mars.

Á fimmta hundrað manns alls staðar að mættu til að ræða niðurstöður samráðs um ný heildarlög um skólaþjónustu, varpa ljósi á álitamál og leita lausna í sameiningu.

Kennarar verða að hafa rödd við borðið

Auk umfangsmikillar hópavinnu þátttakenda fluttu ýmsir hagaðilar erindi á fundinum, meðal annars Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sem ítrekaði mikilvægi þess að kennarar og skólasamfélagið ættu virkan þátt í þróun skólaþjónustu.

„Við kennarar, við sérfræðingarnir, erum að leiða stærsta hópinn. Við erum þau sem mætum börnunum. Við verðum að hafa rödd við borðið. Við verðum að vera virkir hluthafar í ferlinu,“ sagði Magnús Þór.
„Við erum að breyta heiminum. Það þýðir að við verðum að breyta viðhorfum, virkja krafta okkar og læra af hvert öðru.“

Við kennarar, við sérfræðingarnir, erum að leiða stærsta hópinn. Við erum þau sem mætum börnunum. Við verðum að hafa rödd við borðið. Við verðum að vera virkir hluthafar í ferlinu.

Engar breytingar án kennarans

Orð formannsins rímuðu vel við það sem Donata H. Bokowska, kennari og sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu, sagði á fundinum um hlutverk kennarans í þrepaskiptu stuðningskerfi: „Eitt er víst. Það skiptir ekkert eins miklu máli og það sem við kennarar gerum á hverjum degi í skólastofunni okkar. Það sem stjórnvöld gera er mikilvægt, en í samanburði við áhrif okkar kennara, er það bara eitt eða tvö púsl í stóru myndinni.“

Það er útilokað að ná fram breytingum í skólum án kennara. Þar af leiðandi er það einnig „undir okkur komið hvort góður árangur náist,“ sagði Donata. Það kallar á ýmsar áskoranir eins og breytt viðhorf, samvinnu og samtal, aukinn sveigjanleika, seiglu, þolinmæði, virka samkennd og trú á getu nemenda. Kennarar þurfa að vera opnir fyrir breytingum, ekki slá þær út af borðinu, heldur vera tilbúnir til að prófa nýjar leiðir og opna nýjar dyr.

Hún sagðist hafa trú á getu kennarasamfélagsins til að nota þetta tækifæri til að móta kerfi sem muni vekja öfund í heiminum. „Ný lög og reglur gefa okkur svigrúm og tækifæri til að breiða út faglega vængi okkar.“

Eitt er víst: Það skiptir ekkert eins miklu máli og það sem við kennarar gerum á hverjum degi í skólastofunni okkar

Nám ekki eini þáttur menntunar

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri hjá ráðuneytinu, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Menntamálastofnunar, Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, og Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, héldu einnig erindi á Þjóðfundinum.

Kolbrún sagði löngu tímabært að innleiða verklag og starfshætti sem fælu í sér skýra viðurkenningu á því að samvinna á sviði menntunar og velferðar barna væri lykilatriði. Barn þroskast og lærir frá því að það vaknar á morgnana og þar til það fer að sofa á kvöldin, benti hún á.

Auk formlegs náms, það er að segja, þess náms sem fer fram innan skólanna, á sér stað hálf-formlegt nám, til dæmis innan frístundaheimila og félagsmiðstöðva, og síðast en ekki síst óformlegt nám heima við og í jafningjahópum. Það skiptir gríðarlegu máli að börn eigi sér bakhjarla á öllum þessum sviðum.

Barn þroskast og lærir frá því að það vaknar á morgnana og þar til það fer að sofa

Um tengsl farsældar og velferðar barna og náms og menntunar – og mikilvægi þess að huga að hvoru tveggja, sagði Kolbrún: „Í raun má segja að menntun sé leið til farsældar. Markmið menntunar er að við verðum farsælir einstaklingar og þátttakendur í samfélaginu,“ sagði Kolbrún og vitnaði í gríska heimspekinginn Aristóteles sem sagði að menntun væri að rækta mennskuna, gera hverri manneskju kleift að þroska hæfileika sína og getu í þágu eigin farsældar og í þágu samfélagsins.

„Það er þess vegna mjög mikilvægt að leggja menntun ekki algjörlega að jöfnu við formlegt nám, sem er svo sannarlega einn af grunnþáttum menntunar en alls ekki sá eini. Að menntast er að þeir eiginleikar og hæfileikar sem gera okkur mennsk fái notið sín, dafnað og þroskast.“

Efling skólaþjónustu í fyrirrúmi

Mennta- og barnamálaráðherra kynnti í haust áform sín um að leggja fram ný heildarlög um skólaþjónustu. Markmið nýju laganna er að tryggja öllum skólum faglegt bakland í fjölbreyttum verkefnum sínum ásamt því að efla þverfaglega samvinnu milli skóla-, félags- og heilbrigðisþjónustu í þágu nemenda.

Síðan þá hefur staðið yfir umfangsmikið samráðsferli við fjölbreyttan hóp haghafa. Auk þjóðfundarins fór fram þéttsetin ráðstefna um áformin og samráð á Grand Hótel Reykjavík í haust og þá hafa yfir þrjú hundruð tekið þátt í rafrænum samráðsfundum sem fóru fram í desember.

Næstu skref felast svo í því að vinna úr upplýsingum viðamikils samráðsferlisins áður en frumvarp til nýrra laga um skólaþjónustu verður lagt fram. Á vef Stjórnarráðsins segir að niðurstöður fyrsta hluta samráðsferlisins sýni að töluverður samhljómur ríki meðal ólíkra haghafa um áherslur og heildarsýn á skólaþjónustu á Íslandi en þó standi eftir ýmis mikilvæg úrlausnarefni.