Menntun - réttlátara samfélag
Vaxandi tekjumunur meðal þjóða heimsins hefur víðtæk áhrif á samfélag okkar og efnahag. Aukið misrétti veldur efnahagslegum samdrætti og helsta skýringin er sú að sá hluti samfélagsins sem stendur höllum fæti getur ekki fjárfest í menntun. Aðgerðir sem draga úr ójöfnuði skapa bæði réttlátara samfélag og sterkari efnahag. Þetta er meginniðurstaða í nýrri skýrslu frá OECD sem var birt 9. desember síðastliðinn. Vert er að hugleiða þetta vegna þess að ójöfnuður hefur gríðarleg áhrif á menntun og þar með lífsfkomu fólks.
Ólafur Hjörtur Sigurjónsson
Aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla og Formaður félags stjórnenda í framhaldsskólum
Efnahagslegur ójöfnuður er nú um stundir meiri en verið hefur í 30 ár í flestum ríkjum OECD. Auðugasti 10 % hluti samfélagsins fær 9,5 sinnum meira í sinn hlut en sá 10% hluti sem minnst hefur. Á níunda áratug síðustu aldar var þetta hlutfall 7:1. Svokallaður Gini-stuðull er notaður sem mælikvarði á jöfnuð (ójöfnuð), minnsta gildi er 0; ef allir hafa sömu tekjur (sem mælist þá fullkominn jöfnuður), hæsta gildið er 1, ef allar þjóðartekjurnar falla einum manni í skaut (sem telst fullkominn ójöfnuður). Um miðjan níunda áratuginn var Gini-- meðaltalið í OECD 0,29 en um áramótin 2011/2012 hafði meðaltalið aukist um 3 stig, í 0,32. Til samanburðar er rétt að geta þess að Gini-stuðull fyrir Ísland var 0,25 árið 2011. Ef við skoðum hversu mikið meira auðugasti 10% hluti samfélagsins hér á landi fær í sinn hlut umfram 10% hlut þeirra sem minnst fá er munurinn 8,4 en er 9,5 að meðaltali í OECD eins og áður sagði. Jöfnuður er sem sagt þó nokkuð meiri hér en að meðaltali í OECD á þessum tíma.
Nú eru vísbendingar um að Gini-stuðull fari hækkandi hér á landi. Verulegur tekjuójöfnuður hefur mikil neikvæð áhrif á efnahag ríkja samkvæmt rannsóknum OECD. Þegar ójöfnuður Gini-stuðuls vex um þrjá punkta eins og reyndin hefur verið síðustu tvo áratugi verður vöxtur efnahags 0,35% minni en ella á hverju ári. Síðustu 25 árin eru þetta uppsafnað, 8,5% minni vöxtur þjóðartekna en annars hefði verið. Hvernig getur staðið á þessu? Helsta skýringin er þessi: ójöfnuður hindrar að hæfni manna geti vaxið, tækifæri til menntunar minnka, hreyfanleiki einstaklinga minnkar. Ójöfnuður veldur tjóni til framtíðar vegna niðurbrots menntunar. En hvað segir þetta okkur? Aðgerðir sem draga úr ójöfnuði gera samfélagið ekki aðeins réttlátara heldur líka auðugra. Aðgerðirnar eru ekki eingöngu til þess að færa fjármagn milli hópa. Þetta snýst jafnframt um opinbera þjónustu fyrir alla aldurshópa, öflugt menntakerfi fyrir alla og gott heilbrigðiskerfi.
Áhrif efnahagskreppu og hugmyndafræði, sem er fjandsamleg því að menntun sé veitt af hinu opinbera og áhugi á einkavæðingu ábatasamlegs hluta menntakerfisins, veldur því að opinbera hluta menntakerfa er ógnað og stuðningur við menntastofnanir ríkisins hefur dregist saman. Afleiðingin er sú að grafið er undan gæðum menntunar í mörgum löndum þar sem menntun var valkostur fyrir alla
Menntun stuðlar að því að eintaklingur nær að þroska hæfileika sína og mannlega færni sem þátttakandi í samfélaginu. Hún er kjarninn í þroska einstaklinga og samfélaga. Markmið menntunar er að sérhvert okkar þroski hæfileika sína til fullnustu, örvi frumkvæði og nýsköpun og taki ábyrgð á eigin lífi, umhverfi og náttúru.
Þess vegna eigum við að tryggja að menntun sé aðgengileg öllum frá barnæsku til fullorðinsára án hindrana og íþyngjandi útgjalda. Höfum ávallt í huga að:
- menntun skapar grunn jafnréttis í samfélögum
- menntun er afar þýðingarmikil opinber þjónusta
- menntun er ekki aðeins upplýsandi, heldur gerir hún fólki m.a. kleift að taka þátt í þjóðfélags- og efnahagsumbótum í samfélaginu
Ef við notum vitneskju okkar úr fyrirliggjandi skýrslum og rannsóknum um þau úrlausnarefni varðandi jöfnuð og menntun sem við nú stöndum frammi fyrir, getum við leyst úr ágreiningi og átökum, sigrast á fátækt og fáfræði, forðast mengun og eyðingu vistkerfa og stuðlað að réttlátara samfélagi fyrir okkur öll.
Ólafur Hjörtur Sigurjónsson
Aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla
Formaður félags stjórnenda í framhaldsskólum