Menntaþing fer fram á mánudag

Hægt er að skrá sig á Menntaþing 2024 til og með 25. september. Dagskrá Menntaþings er viðamikil og farið verður yfir stöðuna nú, hvað er verið að gera og hver eru næstu skref. Aðgangur er ókeypis og bæði boðið upp á staðfund og streymi.
Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til Menntaþings mánudaginn 30. september klukkan 9:00–16:00 á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi. Menntaþing er opið öllum áhugasömum og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráningarfrestur er til og með 25. september.
Að þinginu standa, auk Kennarasambands Íslands og Mennta- og barnamálaráðuneytisins, Samband íslenskra sveitarfélaga, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Heimili og skóli, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda á skólaskrifstofum og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Á Menntaþinginu verður rætt um stöðu menntakerfisins, yfirstandandi breytingar og næstu skref í menntaumbótum með kynningu á fyrirhugaðri 2. aðgerðaáætlun í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Niðurstöður samtalsins verða nýttar við endanlega mótun áætlunarinnar.
DAGSKRÁ MENNTAÞINGS
1. Hver er staðan?
9:00 Opnunarávarp
9:10 Staða menntakerfisins
- Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
9:30 Pallborð – staða menntakerfisins
- Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Elsa Eiríksdóttir, prófessor og deildarforseti Deildar faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Dagný Hróbjartsdóttir, foreldri og stjórnarkona Heimilis og skóla Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Valdimar Víðisson, skólastjóri og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
2. Hvað er verið að gera?
10:00 Viðamiklar breytingar á menntakerfinu
- Erna Kristín Blöndal, ráðuneytisstjóri
10:10 Matsferill – nýtt samræmt námsmat
- Freyja Birgisdóttir, sviðsstjóri matssviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
10:20 Yfirsýn yfir nemendur, skólasókn og frammistöðu – nýi nemendagrunnurinn Frigg
- Andri Úlfarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Júní
10:25 Efling menntarannsókna, starfsþróunar kennara og skólaþróunar
- Sigríður Margrét Sigurðardóttir, dósent við Háskólann á Akureyri
10:30 Umbylting lagastoða til eflingar skólaþjónustu
- Anna Tryggvadóttir, skrifstofustjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu
10:40 Kaffi
11:00 Fjölgun kennara
- Kristín Jónsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
11:05 Heildarendurskoðun á útgáfu námsgagna
- Katrín Friðriksdóttir, sviðsstjóri miðlunarsviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
11:10 MEMM – jöfn tækifæri barna af erlendum uppruna
- Fríða Bjarney Jónsdóttir, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu
11:15 Endurreisn foreldrastarfs
- Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla
11:20 Endurbættar aðalnámskrár
- Linda Heiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla
11:25 Pallborðsumræður – breytingar á menntakerfinu
- Gunnar E. Sigurbjörnsson, deildarstjóri frístundaþjónustu Árborgar, Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara Helgi Arnarson, sviðsstjóri Menntasviðs Reykjanesbæjar Júlíana Rós Skúladóttir, ungmenni í ráðgjafarhópi Umboðsmanns barna Þröstur Flóki Klemensson, ungmenni í ráðgjafarhópi Childs Rights Connect
12:00 Hádegisverður
3. Hver er næstu skref?
12:50 Næstu aðgerðir í menntaumbótum
- Björk Óttarsdóttir, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu
13:15 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu – hlutverk nýrrar þjónustustofnunar
- Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri
13:30 Sjónarmið sveitarfélaga
- Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
13:35 Sjónarmið barna og ungmenna
- Ungmennaráð Samfés
13:40 Sjónarmið fræðasamfélagsins
- Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ
13:45 Sjónarmið kennara
- Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
13:50 Sjónarmið atvinnulífsins
- Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, verkefnastjóri í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins
13:55 Hlutverk foreldra í menntun barna
- Anna Magnea Hreinsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
14:00 Hópvinna um næstu skref
14:30 Kaffi
14:50 Hópvinna – framhald
15:20 Hvar viljum við vera árið 2030?
- Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
Verkefnið er brýnt, á valdi margra aðila og ekki leyst nema með samstöðu samfélagsins alls, kennara og starfsfólks skóla, foreldra, nemenda og annarra. Mennta- og barnamálaráðuneytið kallar því eftir þátttöku sem flestra í umræðu, mótun og útfærslu aðgerða.