Menntastofnanir skora hátt

Skólar og fístundamiðstöðvar skora hátt í könnun Sameykis á fyrirmyndarstofnunum í samfélaginu. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Norðlingaskóli skora hæst í sínum flokkum.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í fyrsta sæti yfir fyrirmyndarstofnanir með 20 til 49 starfsmenn. Þrír aðrir framhaldsskólar fylgja fast á eftir; Menntaskólinn á Tröllaskaga, sem er í 2. sæti, Menntaskólinn á Laugarvatni, í 3. sæti, og Menntaskólinn á Egilsstöðum, í 5. sæti.
Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem ber yfirskriftina Val á stofnun ársins 2020 og er gerð árlega hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga og sjálfseignarstofnunum. Í könnuninni er lagt mat á starfsumhverfi í opinberri þjónustu.
Athygli vekur hversu margir skólar raða sér á topplista þessa árs.
Í flokki fyrirmyndarstofnana, með 50 eða fleiri starfsmenn, eru þrír framhaldsskólar; Fjölbrautaskólinn í Garðabæ er í öðru sæti, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra í 3. sæti og Menntaskólinn við Hamrahlíð í því fimmta.
Hægt er að kynna sér röðun framhaldsskólanna, skoða hvernig þeir koma út í mismunandi matsþáttum, skoða sögu hverrar stofnunar fyrir sig og bera saman skóla í samantekt sem Félag framhaldsskólakennara hefur tekið saman og sett á vef sprotafyrirtækisins Grid. Upplýsingarnar á vef Grid eru bæði aðgengilegar og gagnvirkar.
Norðlingaskóli í fyrsta sæti
Þegar flokkurinn fyrirmyndarstofnun sveitarfélags með 50 eða fleiri starfsmenn eru skoðuð kemur í ljós að þar eru menntastofnanir í fimm efstu sætunum. Þetta eru Norðlingaskóli sem er í fyrsta sæti, þá frístundamiðstöðvarnar Ársel, Tjörnin og Gufunesbær og svo Laugarnesskóli í fimmta sætinu.
Um könnunina
Könnunin náði til um 12 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu og var unnin af Sameyki – stéttarfélagi í almannaþjónustu, í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneyti. Í könnuninni voru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti.
Markmiðið með útnefningu stofnana ársins er að hvetja stjórnendur til að gera vel í starfsmannamálum og að auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum.
Nánari upplýsingar um val á stofnunum ársins má nálgast á vef Sameykis.