Menntastefnan komin í samráðsgátt

Menntamálaráðuneytið hefur opnað samráðsgátt vegna tillögu að þingsályktun um menntastefnu til 2030.
Drög að tillögu til þingsályktunar sem ber yfirskriftina Menntastefna til 2030 hafa verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda. Öllum er frjálst að senda inn umsögn.
Í kynningu á vef stjórnarráðsins segir að markmið stjórnvalda með mótun menntastefnu til ársins 2030 sé að veita „framúrskarandi menntun með áherslu á þekkingu, vellíðan, þrautseigju og árangur í umhverfi þar sem allir skipta máli og geta lært.“
Þá segir að drögin taki mið af alþjóðlegum sáttmálum, samningum og skuldbindingum svo sem Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Fram kemur að helstu áherslumál stjórnvalda séu eftirfarandi:
A. kennsla og stjórnun menntastofnana verði framúrskarandi,
B. allir hafi jöfn tækifæri til menntunar,
C. námskrá, námsumhverfi og námsmat styðji við hæfni til framtíðar,
D. samábyrgð ríki um framkvæmd og gæði skóla- og fræðslustarfs.
Lesa tillögu að þingsályktun – Menntastefnu til 2030
Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsagnir sínar og ábendingar – samráðsgátt stjórnvalda.