Menntaskóli Borgarfjarðar samþykkti kjarasamning
Fréttir|19. júní 2020

100% þeirra sem tóku þátt sögðu já.
Eitt hundrað prósent þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni um nýjan samning KÍ og Menntaskólans í Borgarfirði sögðu já.
Kennarar og stjórnendur í Menntaskólanum í Borgarfirði hafa samþykkt samkomulag Kennarasambands Íslands, vegna framhaldsskóla, um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila. Allir sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni sögðu já. Enginn sagði nei. Kjörsókn var 75 prósent.
Niðurstaða atkvæðagreiðslu í Menntaskólanum í Borgarfirði:
Á kjörskrá voru 12
Atkvæði greiddu 9 eða 75%
Já sögðu 9 eða 100%
Nei sögðu 0 eða 0%
Auðir voru 0 eða 0%