Menntamálastofnun opnar Fræðslugátt

Fréttir|17. mars 2020

Rafrænt námsefni Menntamálastofnunar er nú opið öllum í Fræðslugátt. Kennarar eru beðnir þegar tækifæri gefst að senda inn tillögur að efni sem hægt er að miðla í Fræðslugáttinni.

Menntamálastofnun hefur opnað Fræðslugátt. Á vefnum er að finna rafrænt námsefni Menntamálastofnunar, upplýsingar um efni á vegum RÚV og annað efni sem nýst getur skólasamfélaginu.

 

Í frétt á vef Menntamálstofnunar kemur fram að vefurinn er fyrst og fremst „hugsaður sem stuðningur við kennara og skóla sem nú takast á við krefjandi aðstæður vegna takmarkana á skólahaldi. Foreldrar og nemendur eiga einnig að geta fundið efni á vefnum sem hentað getur fyrir heimanám og verkefni daglegs lífs.“

Þá kemur fram að á vef Menntamálastofnunar séu fræðslumyndir nú aðgengilegar öllum íslenskum ip-tölum. Um tímabundna ráðstöfun er að ræða. 

Kennarar eru beðnir þegar tækifæri gefst að senda inn tillögur að efni sem hægt er að miðla í Fræðslugáttinni. Um er að ræða vefsíður, fésbókarhópa og annað efni sem nýst getur skólum, kennurum, nemendum, foreldrum og sveitarfélögum. Jafnvel kemur til greina að framleiða eitthvað efni eða útbúa sérstaklega til miðlunar.

Endilega sendið Menntamálastofnun póst með hugmyndum og ábendingum um samstarf og efni sem hægt er að koma á framfæri.

Unnið er að því, í samstarfi við Blindrafélag Íslands, að setja upp vefþulu á vefi stofnunarinnar en með því eykst aðgengi sjónskertra og lesblindra að vefnum og ekki síst að námsefninu.

 

Þá hefur Menntamálastofnun samið við A4 um að hraða útsendingu bóka til skóla eins og unnt er.