Menntamálaráðherra þarf að skýra mál sitt

Fréttir|21. maí 2018

Menntamálaráðherra virðist ósammála grunnskólakennurum um að hækka þurfi laun þeirra verulega ef marka má fréttir í gærkvöldi. Í öllu falli virðist ráðherrann ósammála því að stórsókn í menntamálum sé marklítil án aðgerða til að bæta kjörin. Ég held að nauðsynlegt sé að menntamálaráðherra skýri afstöðu sína betur. Ég man ekki betur en að ráðherrann hafi sjálfur kallað eftir þjóðarsótt um bætt kjör kennara. Þess vegna hryggir það mig að sjá yfirlýsingu frá forystu grunnskólakennara um hið sama mætt með þessum hætti.

Þjóð, sem upp úr aldamótum stóð ekki frammi fyrir neinum fyrirsjáanlegum kennaraskorti, horfir nú fram á það að meira en helmingur menntaðra grunnskólakennara getur ekki hugsað sér að vinna í grunnskólum, fjöldamargir aðrir íhuga að hætta, enn aðrir veikjast og hverfa frá starfi – og ungt fólk sér kennslu ekki sem vænlegan starfsvettvang.

Menntamálaráðherra gefur í skyn að mikilvægara sé að bregðast við nýliðunarvanda til að hefja stórsóknina. Nota megi námsstyrki til að laga ástandið. Það er auðvitað rétt að auka þarf nýliðun kennara. Það mun hinsvegar duga skammt að dæla nýju fólki inn í kerfi sem er að blæða út. Það þarf að halda fólki inni í skólunum sem á annað borð hefur haldist þar. Og það jaðrar við að liggja á mörkum velsæmis að tala niður kröfur kennara um bætt kjör eftir það sem á undan er gengið.

Síðustu tíu ár hefur grunnskólakennurum verið falið að innleiða hér í landinu nýja menntastefnu sem á köflum er bæði þversagnarkennd og óraunhæf, m.a. vegna þess að menntamálaráðherrar hafa ekki verið sammála um stefnuna og þeir hafa því teygt og togað skólakerfið hver í sína átt, á sama tíma hafa kröfur um menntun kennara aukist og vegna efnahagsþrenginga hafa þeir þurft að starfa að verulegu leyti án þess stuðningsnets og aðbúnaðar sem til þarf svo skólastarf nái að blómstra. Þetta hefur haft áhrif á gæði náms og andlega og líkamlega heilsu bæði kennara og nemenda. Mikilli fjölgun nemenda af erlendum uppruna hefur að sama skapi ekki verið mætt af þeirri ábyrgð og með þeim úrræðum sem nauðsynleg eru. Ofan á það bætist að eldri kennarar hafa verið þvingaðir til aukinnar kennslu og lífeyriskjörin hafa verið skert með lögum.

Einn angi málsins er sá að sum sveitarfélög telja að þau verji nú þegar nægu fé til menntamála. Þau vilja nota peninga í annað. Vísa þau þá oft til þess að framlög til málaflokksins séu há miðað við önnur lönd. Sumir bæta því við að laun kennara hafi hækkað nóg í prósentum á síðustu árum og því muni launahækkanir til þeirra sjálfkrafa eyðileggja allan stöðugleika í kjaramálum því engin sérstök ástæða sé til að gera þjóðarsátt um hærri laun en þegar bjóðast.

Það er mikilvægt að reyna að byggja þessa umræðu á staðreyndum. Það er alveg rétt að það er dýrt að halda úti grunnþjónustu á Íslandi – og sérstaklega menntun. Vinnuvikan er löng og viðvera barna í stofnunum á vegum sveitarfélaga er langt umfram það sem almennt þekkist. Þá er landið fámennt og strjálbýlt og það kostar sitt. Staðreyndin er samt sem áður sú að síðasta áratug hafa framlög til fræðslumála dregist verulega saman hér á landi og þau hafa ekki nema að litlu leyti skilað sér eftir hrun.

Þá er landið í nokkrum sérflokki þegar kemur að því hve lítið af framlögum til fræðslumála rennur til launa kennara. Öll ríki OECD nema tvö, Eistland og Tékkland, veita stærri hluta fræðsluframlaga til launa kennara en Ísland.


Sem sagt, frá hruni hafa framlög til menntamála dregist verulega saman hér á landi og ofan í það bætist að óvenju lítið af framlögunum rennur til launa kennara.

Það er augljóst svigrúm til að gera betur. Það sem skortir er skilningur á stöðunni, metnaður og vilji.

Nú standa grunnskólakennarar í kjarabaráttu. Viðsemjendur þeirra segjast ekki hafa umboð til að semja um neitt nema áframhald á því sama. Forysta kennara hefur á móti ekki umboð til slíkra samninga.

Þrítugur grunnskólakennari með réttindi sem tekur laun eftir launaflokki 233 fær nú 405 þúsund krónur í mánaðarlaun. Það er 105 þúsund krónum yfir lágmarkslaunum. Eins kennari fékk 265 þúsund krónur í laun í upphafi árs 2009. 

Nokkuð hefur verið rætt um launaþróun síðustu daga. Slegið hefur í brýnu milli bæjarstjóra Kópavogs og forsætisráðherra. Berum kennarann nú saman við þessa ráðamenn. Árið 2009 fékk bæjarstjórinn í Kópavogi eina milljón og 71 þúsund í mánaðarlaun og forsætisráðherra fékk níuhundruð þrjátíu og fimm þúsund krónur í laun. 

Nýlega fékk bæjarstjórinn í Kópavogi launahækkun á einu bretti upp á 612 þúsund krónur á mánuði. Forsætisráðherra gagnrýndi hækkunina en bæjarstjórinn varði hana og sagði hækkunina í samræmi við launaþróun. En hver er þessi launaþróun? Laun þessara aðila hafa hækkað um 133-135% frá árinu 2009 – og hefur forsætisráðherrann hækkað meira en bæjarstjórinn.

Ef við skoðum laun kennarans miðað við þessa ráðamenn þá er staðan sú að árið 2009 fékk áðurnefndur kennari 25% - 29% af launum þessara ráðamanna. Hefði það hlutfall haldist óbreytt væru laun kennarans nú 618 - 624 þúsund krónur á mánuði. Það vantar hvorki meira né minna en 200 þúsund krónur á mánuði upp á það að laun grunnskólakennara hafi fylgt þeirri „launaþróun“ sem æðstu ráðamenn ríkis og sveitarfélaga virðast fylgja!

Á sama tímabili hafa með valdi verið tekin af kennaranum verðmæt réttindi – og önnur hafa verið samin í burtu í umdeildum kjarasamningum.

Skyldi einhvern undra að kennaraskortur sé að aukast og verða viðvarandi og hættulegur þegar stefnan er þessi? 

Launakjör grunnskólakennara verða að batna. Spurningin er bara hve mikið og hve hratt. 

Nú standa yfir samningar milli forystu grunnskólakennara og sveitarfélaga. Sveitarfélögin eru mörg hver að skila methagnaði og aðstæður hafa sjaldan verið betri til að ganga til þess verks að hefja nauðsynlega leiðréttingu. 

Það væri fullkomið ábyrgðarleysi af forystu grunnskólakennara að gera lítið úr þeirri þörf sem er á róttækum umbótum á kjaramálum kennara. Það er vægast sagt óheppilegt að ráðherra, sem talað hefur fyrir umbótum, virðist nú gera lítið úr sömu þörf. 

Ráðherrann þarf að skýra mál sitt betur.