Menntamálaráðherra skýrir mál sitt

Fréttir|24. maí 2018

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra skrifaði færslu á fésbókina þar sem hún brást við áskorun um að skýra afstöðu sína til kröfu grunnskólakennara (sem enn eru samningslausir) um bætt kjör. Færslan er svona í heild sinni:


Í máli hennar kemur fram að grunnskólakennarar og sveitarfélögin verði að ná góðum samningum og skapa verði sátt. Þá sé nauðsynlegt að kjör kennara séu samkeppnisfær hvort sem miðað er við sérfræðinga á opinberum eða almennum markaði.

Það er gott að menntamálaráðherra skuli taka virkan þátt í umræðu um þessi mál. Sagan hefur sýnt okkur að það er ekki sjálfgefið. Þá undirstrika orð Lilju nokkuð skýrt þann ásetning að hér á landi þurfi að byggja upp öfluga stétt vel menntaðs fagfólks við kennslu. Það verður auðvitað ekki gert án þess að starfskjörin séu í lagi.

Nú er sá munur á kennurum og mörgum öðrum sérfræðingum að þeir starfa nánast eingöngu sem slíkir hjá hinu opinbera hér á landi og langflestir eftir miðlægum samningum. Það er því engan veginn sjálfgefið hvað átt er við með því að kjör kennara skuli vera samkeppnisfær. Einfaldasta túlkunin er kannski sú að laun kennara standist samanburð við laun annarra sérfræðinga ef kennaramenntað fólk hefur sama fjárhagslega ávinning af því að leggja fyrir sig kennslu og önnur sérfræðistörf.

Eins og þessi myndi sýnir fer því fjarri í dag.


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

C: Framleiðsla; D: Rafmagns-, gas og hitaveitur; G: Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum; H: Flutningar og geymsla; J: Upplýsingar og fjarskipti; K: Fjármála og vátryggingarstarfsemi; O: Opinber stjórnsýsla og varnarmál, almannatryggingar; P: Fræðslustarfsemi; Q: Heilbrigðis- og félagsþjónusta.

 

Skólafólk hefur algjöra sérstöðu sem sérfræðingar á vinnumarkaði. Laun þeirra eru ekki aðeins lægst, heldur langlægst.

Þetta verður ekki leiðrétt í einu stökki eða einum samningum. En það er þó fyrsta skrefið. Með einhliða upptöku rammasamkomulags tóku sveitarfélögin í raun afstöðu gegn þjóðarsátt um bætt kjör kennara. Í því fólst gríðarlegt ábyrgðarleysi sem þegar hefur haft veruleg skaðleg áhrif á skólastarf. Þau áhrif eru ekki að fullu komin í ljós. Kennarar kalla nú eftir að sveitarfélög taki þátt í sátt um bætt kjör. Það er frábært að menntamálaráðherra taki undir slíka kröfu. Það er samt ekki nóg. Það verður eitt meginverkefna þeirra sem hljóta kjör um helgina að leiða slíka sátt.

Þjóðarsátt er grundvöllur þeirrar leiðréttingar sem nauðsynleg er á kjörum kennara. Án slíkrar leiðréttingar verður engin stórsókn í menntamálum.