Menntamálaráðherra sendir skólafólki kveðju

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir skólafólk geta horft stolt um öxl.
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir fagnaðarefni að í dag sé runninn upp „fyrsti hefðbundni skóladagurinn frá upphafi samkomubanns vegna COVID-19“. Lilja sendi skólafólki kveðju í morgun þar sem hún segir meðal annars að skólafólki verði seint fullþakkað fyrir þá útstjónarsemi og elju sem það hefur sýnt við að tryggja velferð nemenda undanfarnar vikur. Ráðherra segir skólafólk geta horft stolt um öxl.
Bréf Lilju til skólafólks hljóðar svo:
Kæra skólafólk.
Fyrsti hefðbundni skóladagurinn frá upphafi samkomubanns vegna COVID-19 er runninn upp. Það er fagnaðarefni fyrir allt skólasamfélagið. Þið hafið lagt hart að ykkur til að tryggja velferð nemenda og með útsjónarsemi ykkar og elju hefur það tekist, og þið unnið afrek sem seint verður fullþakkað.
Faraldurinn hefur ekki aðeins reynt á heilbrigðiskerfi landa, heldur einnig aðra innviði og sjálfa samfélagsgerðina. Íslenska menntakerfið er ein mikilvægasta grunnstoð samfélagsins og það hefur staðist hverja raunina á fætur annarri, með ykkur í fylkingarbrjósti.
Þið hafið á skömmum tíma lagað ykkur að afar krefjandi aðstæðum, tekið upp nýja kennsluhætti, nýtt tæknina þar sem því er viðkomið og staðið með nemendum ykkar. Þetta á við um öll skólastig. Á þeim tímamótunum sem dagurinn markar getum við horft stolt um öxl.
Hafið þið bestu þakkir fyrir þrekvirkið, sem er einstakt á heimsvísu.
Kær kveðja,
Lilja D. Alfreðsdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra