Menntamálaráðherra hvetur til samvinnu vegna bólusetninga

Fréttir|30. apríl 2021

Skipulagið tekur mið af aðstæðum, tegund bóluefnis í notkun á hverjum tíma og fleiri þáttum, en ekki þörfum vinnuveitenda eða einstaklinga.

Menntamálaráðherra sendi út orðsendingu vegna bólusetninga starfsfólks í skólum landsins. Þar hvetur ráðherra til samvinnu sem mun tryggja hnökralausar bólusetningar.

 

Orðsending menntamálaráðherra:

Samvinna í skólakerfinu tryggir hnökralausa bólusetningu


Bólusetning gegn Covid-19 gengur vel og stefnt er að því að ljúka fyrri bólusetningu áhættuhópa á næstu dögum. Í framhaldinu hefst bólusetning starfsfólks í leik-, grunn- og
framhaldsskólum, vonandi strax í næstu viku.

Mikilvægt er að starfsfólk skólanna mæti til bólusetningar á boðuðum tíma, svo framkvæmdin gangi hratt og vel. Skipulagið tekur mið af aðstæðum, tegund bóluefnis í
notkun á hverjum tíma og fleiri þáttum, en ekki þörfum vinnuveitenda eða einstaklinga. Skólastarf gæti því raskast í einhverjum tilvikum, en með góðri samvinnu allra lykilaðila má lágmarka óþægindin af þessum langþráða áfanga. Ég hvet skólastjórnendur, kennara og annað starfsfólk skólanna, nemendur og fjölskyldur þeirra til að sýna þolinmæði og
viðeigandi skilning svo þetta mikilvæga samfélagsverkefni gangi vel fyrir sig.


Hlýjar kveðjur,

Lilja D. Alfreðsdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra