Menntamálaráðherra heimsótti Kennarasambandið

Fréttir|16. desember 2021

Nýr mennta- og barnamálaráðherra kynnti sér starfsemi KÍ og helstu mál stéttarinnar voru rædd.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kom ásamt föruneyti úr ráðuneytinu til Kennarasambands Íslands í dag. Tilgangur heimsóknarinnar var fyrst og fremst að hitta forystufólk KÍ og ræða þau mál sem hæst ber þessa dagana ásamt því að kynnast starfsemi Kennarasambandsins.

Fundurinn var góður og allir sammála um að leggja upp með áframhaldandi samvinnu sem hefur skilað árangri síðustu árin.