Menntakvika: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar

Viltu taka þátt í Menntakviku 2024? Frestur til að skila inn ágripi er 28. júní næstkomandi. Þemað að þessu er „framtíð menntunar á tímum gervigreindar“.
Árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntakvika, verður haldin fimmtudag og föstudag, 26. og 27. september 2024. Menntakvika hefur um langt árabil verið fastur liður í haustdagskrá skólafólks en kvikan næstu verður sú 28. frá upphafi.
Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni. Yfirskriftin er Framtíð menntunar á tímum gervigreindar.
Staðsetningu Menntakviku er óráðin á þessu stigi en flutningar Menntavísindasviðs standa fyrir dyrum í haust. Jafnvel er mögulegt að hluti af ráðstefnunni verði rafrænn vegna húsnæðisskorts.
Áætlað er þó að allar málstofur verði aðgengilegar í gegnum Zoom í rauntíma og felur innsending ágrips í sér samþykki á því. Stefnt er að því að búa til sérrit fyrir Menntakviku.
Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum, og tengdum sviðum til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni. Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis.
Öll innsend ágrip þurfa að innihalda:
- stutta lýsingu á tilgangi og markmiðum rannsóknar
- stutta lýsingu á aðferðum
- helstu niðurstöður og ályktanir af þeim auk lærdóms sem draga má af verkefninu.
Engar heimildir eiga að vera í ágripum.
ÁGRIPUM SKAL SKILAÐ INN FYRIR MIÐNÆTTI 28. JÚNÍ 2024.
- Vinsamlegast sendið inn ágrip hér
Ekki verður hægt að skila ágripum inn með öðrum hætti en í gegnum þetta skráningarform. - Þeir sem hafa áhuga á að skila inn greinum í sérrit Netlu þurfa að skila handriti í sniðmáti fyrir 9. ágúst 2024 á menntakvika@hi.is.
Sjá sniðmát hér.