Menntakvika auglýsir eftir erindum

Menntakvika verður haldin 28. og 29. september í Stakkahlíð. Auglýst er eftir erindum á ráðstefnuna sem skila þarf inn fyrir miðnætti þriðjudaginn 8. ágúst. Menntastefna og farsæld er þema Menntakviku í ár.
Þetta er í 27. sinn sem þessi árlega ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands verður haldin. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni. Sérstaklega er kallað eftir ágripum og málstofum sem tengjast þema Menntakviku í ár; menntastefnu og farsæld, sem og öðrum fjölbreyttum viðfangsefnum sem varpa ljósi á grósku á sviði menntavísinda.
- Hér er hægt að lesa meira um áherslur Menntakviku ár.
Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum, og tengdum sviðum, við Háskóla Íslands til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni. Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis.
Öll innsend ágrip þurfa að innihalda stutta lýsingu á tilgangi og markmiðum rannsóknar, aðferðum, helstu niðurstöðum og ályktanir af þeim, auk lærdóms sem draga má af verkefninu. Engar heimildir eiga að vera í ágripum. Hægt verður að horfa á málstofurnar beint á Zoom og felur innsending ágrips í sér samþykki á því. Stefnt er að því að búa til sérrit fyrir Menntakviku.
Frestur til að skila inn ágripum er til miðnættis, þriðjudaginn 8. ágúst.
Frekari upplýsingar veita Íris Sigurðardóttir eða Ellen Dröfn Gunnarsdóttir með því að senda póst á netfangið menntakvika@hi.is