Menntakvika – opnað fyrir móttöku ágripa

Fréttir|27. maí 2022

Menntakvika verður haldin í 26. skipti á hausti komanda. Hafi fólk áhuga á að flytja erindi á Menntakviku er hægt að senda inn ágrip, skilafrestur er til 5. ágúst næstkomandi.

Opnað hefur verið fyrir móttöku ágripa fyrir árlega ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands; Menntakvika – rannsóknir, nýbreytni og þróun, sem haldin verður 6. og 7. október í ár – fimmtudag og föstudag. 

Þetta verður í 26. skipti sem Menntakvika er haldin. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni. 

Í fyrra voru flutt voru tæplega 300 erindi um fjölbreytt efni í 76 málstofum. Ráðstefnan var í annað skiptið alfarið rafræn og áheyrendur fleiri en nokkru sinni. 

Raunheimar og rafheimar

Í ár stefnum við að því að halda ráðstefnuna í bæði raunheimum og rafrænt, til að ná til sem allra flestra. Öllum málstofum verður streymt beint og felur innsending ágrips í sér samþykki á því.  

Á dagskrá ráðstefnunnar verða sem áður bæði málstofur og veggspjaldasýningar, auk þess að mögulegt er að halda skipulagðar hringborðsumræður.  

Eins og fyrri ár verður áhersla lögð á heildstæðar málstofur frá rannsóknarstofum eða -hópum 

Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum, og tengdum sviðum, við Háskóla Íslands til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni.  

Undirbúningur og framkvæmd Menntakviku er í höndum Menntavísindastofnunar. Ráðstefnan er vettvangur mikilvægrar umræðu ár hvert, auk þess að vera uppspretta nýrra hugmynda og þekkingar. 

Skráning er hafin, eins og fyrr segir, og búið er að opna fyrir móttöku ágripa. Skilafrestur ágripa er til miðnættis 5. ágúst 2022.  

Hafið þetta í huga

  • Hámarkslengd er 250 orð.
  • Ágrip eiga ekki að innihalda heimildir. 
  • Lýsið tilgangi rannsóknar 
  • Takið fram hvaða aðferðarfræði er notuð við rannsóknina 
  • Greinið frá helstu niðurstöðum rannsóknar   
  • Ályktið út frá niðurstöðum 

  • Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis. 
  • Sjá nánar á fb-síðu Menntakviku 
  • Senda inn ágrip