Menntafléttan styður við kennara í starfi

Soffía Ámundadóttir verkefnastjóri fer yfir spennandi möguleika Menntafléttunnar í nýrri Skólavörðu.
Menntafléttan eru námskeið fyrir starfsfólk í skóla og frístundastarfi. Námskeiðin skiptast í kennd námskeið Menntafléttu og Opna Menntafléttu. Kenndu námskeiðin eru kennd í lotum yfir skólaárið á Zoom og Opnu Menntafléttu námskeiðin eru alltaf opin og aðgengileg á heimasíðu Menntafléttunnar og hver og einn stýrir hvenær hann tekur hverja lotu.
Námskeiðin eiga það sameiginlegt að rauður þráður þeirra er að styðja við að námssamfélög blómstri á vinnustöðum þátttakenda. Einnig fléttast efni þeirra saman við daglegt starf og viðfangsefnin eru fest í sessi með því að fylgja einföldum þróunarhring, fjórum skrefum sem byggja á rannsóknum á farsælli starfsþróun.
Hvað er Menntafléttan?
Menntafléttu námskeiðin eru kennd í lotum á ákveðnum tímum, yfirleitt í gegnum Zoom og henta því vel fólki sem býr um allt land. Námsefni námskeiðanna má nálgast á vefsvæði Menntafléttunnar þegar kennari opnar viðkomandi lotu. Efni lotanna er yfirleitt sýnilegt degi fyrir kennslu á Zoom. Hægt er að nálgast nánari dagskrá hvers námskeiðs fyrir sig og dagsetningar með því að opna síðu þess.
Opna Menntafléttan er öðruvísi en kenndu námskeiðin að því leiti að efni námskeiðsins er þegar allt inni á vefnum þar með talið kennslumyndbönd frá kennurum. Hver og einn getur því algjörlega stýrt því hvenær hann hefst handa við námskeiðið og hversu langan tíma hann tekur í hverja lotu. Þessi námskeið henta því sérstaklega vel með kennslu því þátttakendur sjálfir stýra ferðinni.
Eitt af höfuðmarkmiðum Menntafléttu er efling menntunar og að valdefla kennara, skólastjórnendur og fagfólk um allt land í þágu náms og þroska nemenda
Tilurð Menntafléttunnar
Árið 2019 ákvað Lilja D. Alfreðsdóttir, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, að fjárfesta í fagþróun kennara og fagfólks í menntakerfinu. Hún setti á laggirnar Menntafléttuna, opna og aðgengilega starfsþróun á landsvísu, í samvinnu við Kennarasamband Íslands, Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.
Menntafléttan er nú að hefja sitt sjötta starfsár, og stendur kennurum og fagfólki úr skóla- og frístundastarfi til boða að taka þátt í opnum og aðgengilegum vefnámskeiðum, víkka út tengslanet sitt og nýta menntarannsóknir og jafningjastuðning til að efla eigið starf. Mennta- og barnamálaráðuneytið styrkir Menntafléttuna.
Starfsþróun byggð á rannsóknum
Námskeið Menntafléttunnar fylgja hugmyndafræði leiðtoganáms og þróun námssamfélags og taka mið af rannsóknum á því hvernig starfsþróun getur best stutt við kennara í starfi.
Hugmyndafræði leiðtoganáms gengur í stuttu máli út á það að þátttakendur á námskeiðunum, kallaðir leiðtogar, vinna með viðfangsefni námskeiðanna í námssamfélagi í eigin skóla, með samkennurum eða samstarfsfólki.
Hvert námskeið er búið til í samvinnu fræðafólks og fagfólks og byggir á nýjustu þekkingu á viðfangsefninu. Námsefnið er allt aðgengilegt á neti, m.a. stuttar greinar og myndbönd, en áhersla er á gagnvirk samtöl milli sérfræðinga og þátttakenda.
Hagnýt netnámskeið óháð staðsetningu
Á hverju Menntafléttunámskeiði er lögð áhersla á að flétta viðfangsefnið saman við daglegt starf þátttakenda. Raunar er lagt upp með að þátttakendur velji námskeið sem tengist því sem er í deiglunni í viðkomandi skóla eða menntastofnun.
Á námskeiðunum eru kynnt til sögunnar verkfæri og kveikjur sem tengjast því að styðja við þróun námssamfélags og verkfæri tengd viðfangsefni námskeiðsins. Námskeiðin ná yfir skólaárið og byggja yfirleitt á fjórum til sex lotum, sem alla jafna fara fram á neti og henta því landsbyggð einkar vel.
Einn af rauðu þráðum Menntafléttunnar er að styðja við námssamfélög, bæði innan hvers námskeiðs en ekki síður á vinnustöðum þátttakenda. Gert er ráð fyrir að leiðtoginn nýti efnivið námskeiðs inn í þverfaglegt samstarf á sínum vinnustað og leiði þannig fag- og skólaþróun.
Á námskeiðum Menntafléttu verður einnig til vettvangur til samtals milli leiðtoga þvert á skóla, stofnanir og landsvæði. Eitt af höfuðmarkmiðum Menntafléttu er efling menntunar og að valdefla kennara, skólastjórnendur og fagfólk um allt land í þágu náms og þroska nemenda.
