Menntafléttan boðar fjölbreytt námskeið

Fréttir|29. ágúst 2025

Menntafléttan hefur sett fram þétta og áhugaverða dagskrá margs konar námskeið fyrir skólaárið 2025 til 2026.

Fjöldi námskeiða er í boði hjá Menntafléttunni i vetur og fram á vor. Má þar nefna námskeiðin Nýliðar í kennslu, Lestur á yngsta stigi grunnskóla, Deildarstjórinn sem faglegur leiðtogi í leikskólastarfi, Lausnahringurinn og svo mætti áfram telja. 

Námskeið Menntafléttunnar fara fram á netinu, eru öllum opin og kosta ekkert. 

Félagsfólk KÍ er hvatt til að kynna sér framboð námskeiða á vef Menntafléttunnar. 

„Rauði þráður Menntafléttunnar er að styðja við að námssamfélög blómstri á vinnustöðum þátttakenda, gefa þátttakendum tækifæri til að víkka út tengslanet sitt og nýta menntarannsóknir og jafningjastuðning til að efla eigið starf.

Áhersla er á að viðfangsefni námskeiða Menntafléttunnar séu beintengd daglegu starfi kennara og skipulögð í kringum raunveruleg viðfangsefni.

Í kennslulotum fá þátttakendur aðgang að fræðilegu og hagnýtu efni sem sett er fram með hliðsjón af skipulagi þróunarhrings. Hverjum þróunarhring fylgja námsgögn fyrir námssamfélög að nýta til umræðna ásamt tillögum að verkefnum til að vinna með börnum og ungmennum á milli lota.

Í lotum Menntafléttunnar verður einnig til vettvangur til samtals milli leiðtoga þvert á skóla, stofnanir og landsvæði.

Til þess að þátttaka í námskeiðum Menntafléttunnar skili sér í frjóu og skapandi starfi þarf að tryggja starfsfólki tíma og rými til þátttöku. Mikilvægt hlutverk stjórnenda er að styðja við og setja þátttöku starfsfólksins í forgang," segir í kynningu á vef Menntafléttunnar. 

Víðtækt samstarf

Mennta- og menningarmálaráðuneytið átti frumkvæði að stofnun Menntafléttunnar árið 2019. Samstarfsaðilar um verkefnið eru nú: Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Listaháskóli Íslands, Kennarasamband Íslands og mennta- og barnamálaráðuneytið. Menntavísindasvið HÍ hefur umsjón með Menntafléttunni. Þessir aðilar eiga fulltrúa í stýrihópi Menntafléttunnar.

Soffía Ámundadóttir, verkefnisstjóri námssamfélaga, á NýMennt á Menntavísindasviði HÍ,  leiðir verkefnið
Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á menntaflettan@menntaflettan.is.