Menntafléttan – góðar móttökur í samfélaginu

Menntafléttan er samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Kennarasambands Íslands.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkir Menntafléttuna um þróun og kennslu um 40 námskeiða sem eru kennurum og starfsfólki í menntakerfinu að kostnaðarlausu. Viðfangsefni námskeiða snerta fjölbreytt svið náms, kennslu, sjálfbærrar þróunar, vellíðunar, frístundastarfs og forystu. Menntafléttan er fyrir kennara, starfsfólk og stjórnendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum, listaskólum og frístundastarfi. Rauður þráður Menntafléttunnar er að stuðla að þróun námssamfélaga. Námskeiðin fléttast saman við daglegt starf, innan þess svigrúms sem þátttakendur hafa til starfsþróunar.
Skólavarðan tók Oddnýju Sturludóttur tali en hún er verkefnastjóri Menntafléttunnar.
Hvernig fer Menntafléttan af stað og hvernig hafa viðtökur verið?
Viðtökur hafa farið fram úr okkar björtustu vonum, en hátt í 1000 kennarar, stjórnendur, stuðningsfulltrúar, fagfólk skólabókasafna og starfsfólk úr frístundastarfi hafa skráð sig til leiks. Við erum auðvitað himinlifandi en að sama skapi meðvituð um mikilvægi þess að standa undir þessu trausti sem okkur er sýnt. Það eiga rúmlega 60% grunnskóla og rúmlega 40% leikskóla á landinu fulltrúa í Menntafléttunni og umgjörð hennar byggir fyrst og fremst á því að styðja við samtal um starfshætti og vinnubrögð í námssamfélagi jafningja í öllum þessum skólum.
Hvernig gekk að sameina allar þessar upplýsingar og alla aðila undir þessum hatti?
Samráð og samstarf milli aðila í menntakerfinu hefur stóraukist hin síðari ár, en ekki bara samstarf heldur samstaða um að taka höndum saman um mikilvægar umbætur. Í stýrihópi Menntafléttu sitja varaformaður KÍ, Anna María Gunnarsdóttir, og Gunnar Gíslason frá Háskólanum á Akureyri auk Kolbrúnar Pálsdóttur, forseta Menntavísindasviðs, og Önnu Kristínar Sigurðardóttur prófessors. Verkefnastjórateymið er staðsett í Reykjavík og á Akureyri og í kynningarfasanum hélt þessi hópur rúmlega 70 kynningarfundi um allt land, stóra og smáa. Alls staðar var okkur tekið opnum örmum og fólk var bæði forvitið en líka gagnrýnið sem hafði mikið að segja um það hvernig verkefnið þróaðist. Í fagteymum Menntafléttunnar sitja um 80 manns, fólk af vettvangi, stjórnendur, kennarar og fólk af skólaskrifstofum auk háskólafólks.
Það eiga rúmlega 60% grunnskóla og rúmlega 40% leikskóla á landinu fulltrúa í Menntafléttunni og umgjörð hennar byggir fyrst og fremst á því að styðja við samtal um starfshætti og vinnubrögð í námssamfélagi jafningja í öllum þessum skólum.
Við höfum lagt mikla áherslu á að með Menntafléttunni séum við ekki bara að styðja við námssamfélög í skólum og stofnunum um land allt, heldur líka innan verkefnisins sjálfs. Það hefur haft heilmikið að segja um hvernig gengið hefur að sameina þennan stóra hóp fólks undir hatti Menntafléttu. Ekkert af þessu hefði þó komið til nema vegna þess að stjórnvöld styrktu verkefnið myndarlega.
Er heitið Menntaflétta og verkefnið sjálft að síast inn hjá kennurum?
Við í verkefnastjórateyminu erum kannski ekki dómbær á það á þessari stundu, framtíðin mun leiða það í ljós – og við vorum heillengi á báðum áttum með þetta nafn! En það hefur komið okkur skemmtilega á óvart hvað mörgum er orðið tamt að tala um Menntafléttunámskeið. Nafnið er glettilega lýsandi því að námskeiðin hafa það skýra markmið að eiga að geta fléttast saman við dagleg störf kennara og starfsfólks í menntakerfinu. Leiðtoganám af þessum toga er auðvitað ekki nýtt af nálinni, en í mörg ár hafa kennarar sótt leiðtoganámskeið til dæmis á vegum Byrjendalæsis. Þetta form starfsþróunar er því ekki uppfinning okkar í Menntafléttunni, þó segja megi að Menntafléttan sé stærsta starfsþróunarverkefni stjórnvalda og háskóla síðari ára.
Hver er þín tilfinning fyrir framhaldinu, mun eftirspurnin halda áfram að aukast?
Ég vona það enda byggir umgjörð Menntafléttu á því sem rannsóknir frá síðustu aldamótum hafa ítrekað leitt fram að sé árangursríkast og farsælast fyrir starfsþróun kennara og starfsfólks. Við höldum vonandi áfram að fá góðar hugmyndir að námskeiðum í samtali við vettvang og svo vonum við auðvitað að stjórnvöld haldi áfram að veðja á Menntafléttuna.
Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2021.