Menntaflétta fyrir framhaldsskólakennara

Fjögur námskeið, ætluð framhaldsskólakennurum, verða í boði Menntafléttunnar á komandi hausti.
Kynbundið ofbeldi, stærðfræði, forritun, leiðsagnarnám, samþætting stærfræði, tölgreina og samfélagsgreina er meðal þess sem verður kennt á námskeiðum Menntafléttunnar á næsta skólaári. Menntafléttan er samstarfsverkefni Menntavísindasviðs HÍ, Háskólans á Akureyri og Kennarasambands Íslands.
Nánar er hægt að kynna sér framboð námskeið á vef Menntamiðju.
Hér að neðan eru námskeið ætluð kennurum í framhaldsskólum kynnt.
– – –
Greindu betur – samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina
Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, námssamfélög þeirra og teymi í nýtingu gagna og gagnagrunna í kennslu ólíkra greina. Rauður þráður í nálgun námskeiðsins er að vinna með lykilhæfniþættina; tjáningu og miðlun, gagnrýna hugsun og nýtingu miðla og upplýsinga.
Lotur námskeiðsins heita
- Kynning á töfraheimi tölfræðinnar: Hvernig gerum við nemendur áhugasama og forvitna um tölfræði?
- Hugtakaheimurinn! Ratað um vef Hagstofunnar og aðra gagnagrunna
- Miðlun: Farsælar leiðir til að miðla tölfræðigögnum
- Greindu betur keppnin
- Tölur sem mælikvarði
- Horft til framtíðar: Þátttakendur miðla vel heppnuðum viðfangsefnum vetrarins.
Kennarar námskeiðsins eru: Anna Hera Björnsdóttir, stærðfræðikennari í Versló, Björgvin Ívar Guðbrandsson, kennari í Langholtsskóla og verkefnastjóri á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Karen Ástu- og Kristjánsdóttir, kennari í kynjafræði og félagsfræði í MH og Víðir Þórarinsson, stærðfræðikennari í Kársnesskóla.
– – –
Leiðsagnarnám og námskraftur í framhaldsskóla
Námskeiðið er ætlað framhaldsskólakennurum í öllum námsgreinum sem vilja efla námskraft nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi með aðferðum leiðsagnarnáms og gróskuhugarfars.
Lotur námskeiðsins heita
- Kynning á viðfangsefni námskeiðsins, leiðsagnarnámi og námskrafti
- Leiðsagnarnám: Námsmenning og námsumhverfi
- Leiðsagnarnám: Námsmarkmið og endurgjöf
- Námskraftur: Meðnám og virkni nemenda
- Þrautseigja: Gróskuhugarfar og ábyrgð nemenda á eigin námi
- Uppskera námskeiðsins, nánar skipulögð í samráði við þátttakendur
Kennarar námskeiðsins eru: Hildur Jónsdóttir, kennari við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ, Hjördís Alda Hreiðarsdóttir og Hjördís Þorgeirsdóttir, kennarar við Menntaskólann við Sund, Ívar Rafn Jónsson, nýdoktor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Súsanna Margrét Gestsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
– – –
Stærðfræði og forritun í framhaldsskóla
Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, námssamfélög þeirra og teymi í að vinna með stærðfræði og forritun.
Lotur námskeiðsins heita
- Kynning á viðfangsefni námskeiðsins
- Forritun
- Kennt með forritun
- Forritun með stærðfræði
- Forritað í stærðfræði
- Samantekt og uppskera
Kennari námskeiðsins er Ingólfur Gíslason aðjúnkt í stærðfræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
– – –
Kynbundið ofbeldi: forvarnir og fræðsla
Markmið námskeiðsins er tvíþætt: Annars vegar að auka skilning þátttakenda á kynbundu ofbeldi og birtingarmyndum þess í samfélaginu. Hins vegar að þátttakendur efli færni sína í að leiða umræðu, vinna með samfélagsleg viðhorf og að málum tengdum kynbundnu ofbeldi sem kunna að koma upp í starfi á vettvangi.
Lotur námskeiðsins heita
- Hinseginleikinn í hversdeginum
- Kynhlutverk og kyngervi: Karlmennska og kvenleiki
- Klámvæðing og normalísering ofbeldis
- Kynheilbrigði: Hvað er það?
- Birtingarmyndir kynbundins ofbeldis
- Samtvinnun, jaðarsetning og öráreiti
Kennarar námskeiðsins eru Katrín Ólafsdóttir framhaldsskólakennari og doktorsnemi við HÍ, Eyrún Ólöf Sigurðardóttir aðjunkt auk gestakennara.