Menntabúðir 2021

Fréttir|8. október 2021

Faghópur um skapandi leikskólastarf í samvinnu við leikskólann Stekkjarás stóð fyrir Menntabúðum fimmtudaginn 7. október 2021 í leikskólanum Stekkjarási. Þemað var fjölbreytt og skapandi leikskólastarf. Mikið rosalega var gaman að geta komið saman að nýju, það var orðið ansi langt síðan að Faghópurinn gat verið með staðbundna dagskrá, en það var á afmæli Faghópsins 11. júní 2020. Það var vel mætt í menntabúðirnar og virtust allir skemmta sér vel, allavega skein ánægja úr hverju andliti.

Faghópur um skapandi leikskólastarf í samvinnu við leikskólann Stekkjarás stóð fyrir Menntabúðum fimmtudaginn 7. október 2021 í leikskólanum Stekkjarási. Þemað var fjölbreytt og skapandi leikskólastarf. 

Mikið rosalega var gaman að geta komið saman að nýju, það er orðið ansi langt síðan að Faghópurinn gat verið með staðbundna dagskrá, en það var á afmæli Faghópsins 11. júní 2020. 
Það var vel mætt í menntabúðirnar og virtust allir skemmta sér vel, allavega skein ánægja úr hverju andliti. 

Að þessu sinni höfðum við það form á að fyrri hluti menntabúðanna var með fyrirfram dagskrá, en seinni hluti var ákveðinn á staðnum. Þetta var í fyrsta sinn sem við prufuðum það og gafst það mjög vel. Hér má sjá endanlega dagskrá. 

Stjórn Faghópsins vill þakka öllum þeim sem stýrðu menntabúðunum kærlega fyrir þeirra framlag, það var ómetanlegt. Þátttakendum þökkum við einnig kærlega fyrir komuna og virka þátttöku í öllu sem fram fór. 

Við tókum margar ljósmyndir og má sjá þær hér.