Meistaranám fyrir starfandi kennara (3)

Fréttir|4. maí 2015

Kennarasambandið vill vekja athygli á að næsta haust mun Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefja tilraun með nýtt og áhugavert nám fyrir starfandi kennara sem hafa starfsleyfi sem grunnskólakennarar en hafa ekki lokið námi á meistarastigi. Við undirbúning námsins var ráðist í viðamikla könnun meðal starfandi kennara auk þess sem rýnihópar gáfu góð ráð varðandi skipulag náms, inntak, tímalengd og kennslufyrirkomulag. Hægt verður að ljúka 60 einingum með diplómagráðu eftir tvö ár. Einnig verður hægt að ljúka meistaragráðu á þremur til fjórum árum. 

Gefinn hefur verið út bæklingur þar sem námið er kynnt, en hægt er að finna bæklinginn hér.