Meirihluti segir já við kjarasamningi

Fréttir|18. september 2015

Yfirgnæfandi meirihluti félaga í Kennarafélagi Tækniskólans hefur samþykkt að kjarasamningur Kennarasambands Íslands og ríkisins, sem skrifað var undir 4. apríl 2014, haldi gildi sínu – þó að undanskildum ákvæðum sem snúa að upptöku nýs vinnutímakerfis með vinnumati og þannig falla frá launahækkun frá 1. júní síðastliðnum upp á 8%. Gildistími samningsins er sá sami og ríkisskólanna. 

Kennarar í Tækniskólanum hafa í tvígang fellt vinnumat; í febrúar og maí á þessu ári.

Rafræn atkvæðaðgreiðsla um kjarasamninginn stóð yfir dagana 15. til 18. september 2015.

Niðurstaðan var svohljóðandi:

  • Á kjörskrá voru 145
  • Atkvæði greiddu 90 eða 62,06%
  • Já sögðu 76 eða 84,45%
  • Nei sögðu 10 eða 11,11%
  • Auðir 4 eða 4,44%