Meirihluti landsmanna styður verkfallsaðgerðir KÍ

Fréttir|21. nóvember 2024
Glæsileg kröfuspjöld á baráttufundi í Háskólabíói 6. nóvember. Mynd: Ragnhildur Aðalsteinsdóttir.

Mestur stuðningur við aðgerðir KÍ er meðal ungs fólks. Konur styðja aðgerðirnar frekar en karlar.

Tæplega 60 prósent landsmanna styðja verkfallsaðgerðir Kennarasambandsins. Um 30 pósent styðja ekki aðgerðirnar og 12 prósent er sama um þær. 

Mikill meirihluti ungs fólks styður verkfall kennara, eða þrír af hverjum fjórum þátttakendum á aldrinum 18-29 ára. Tveir af hverjum þremur þeirra sem eru með háskólapróf styðja aðgerðirnar og þá eru konur líklegri en karlar til að styðja verkfall kennara, eða 65% á móti 50% karla. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup, sem RÚV segir frá. 

Þegar litið er til stuðnings við stjórnmálaflokka þá eru kjósendur Samfylkingarinnar líklegastir til að styðja aðgerðirnar, eða 75 prósent. Á hæla þeirra koma kjósendur VG, með 62 prósent stuðning, og Flokkur fólksins þar á eftir með 54 prósent stuðning. Minnstur stuðningur við aðgerðir KÍ er meðal kjósenda Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Þar er meirihluti kjósenda andvígur aðgerðum KÍ eða 51 prósent. 

Könnunin var gerð 7. til 17. nóvember. Þátttökuhlutfall var 53,4% og úrtakið taldi 1.668 manns.

Lesa ítarlega frétt á vef RÚV