Meirihluti landsmanna hefur jákvætt viðhorf til KÍ

Ímynd Kennarasambandsins er sterk, merki þess er vel þekkt meðal almennings og meirihluti er jákvæður í garð sambandsins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum nýrrar vörumerkjakönnunar Gallup. Merki Kennarasambands Íslands kemur vel út úr samanburði við þau 350 íslensku vörumerki sem könnun Gallup tók til.
Sextíu prósent landsmanna þekkja vörumerki Kennarasambandsins vel og hefur þekking almennings á merki KÍ aukist gífurlega á milli ára eða um 34 prósentustig. Þannig sögðust 26 prósent svarenda þekkja merki KÍ vel árið 2024 miðað við 60 prósent í ár.
Almennt eru konur líklegri en karlar til að þekkja merki Kennarasambandsins, sér í lagi konur á aldrinum 18-49 ára.
Fleiri jákvæðari í garð KÍ en áður
Almennt ríkir jákvætt viðhorf gagnvart Kennarasambandinu og jókst það um 20 prósentustig milli ára. Í fyrra sögðust 34 prósent svarenda vera jákvæðir í garð sambandsins samanborið við 54 prósent í ár. Í fyrra sögðust þá 60 prósent svarenda vera hlutlausir gagnvart sambandinu, samanborið við 37% svarenda í ár. Ekki er ólíklegt að öflug sameiginleg kjara- og ímyndarbarátta kennarastéttarinnar undanfarið hafi leikið hér stórt hlutverk.
Almennt eru konur jákvæðari í garð sambandsins en karlar og helst konur á aldrinum 18 til 49 ára og er sá aldurshópur almennt líklegri en aðrir til að þekkja merkið.
Fylgni milli vitundar og viðhorfs
Athygli vekur að fylgni var á milli vitundar um vörumerki Kennarasambandsins og viðhorfa gagnvart því. Svarendur sem sögðust þekkja Kennarasambandið mjög vel voru jákvæðastir í garð þess á meðan þeir sem sögðust þekkja merki sambandsins mjög illa höfðu veikara viðhorf til þess.
Þannig eru þeir sem þekkja merki Kennarasambandsins talsvert líklegri til að vera jákvæðir í garð þess en þeir sem þekkja vörumerkið illa.
Viðhorf til Kennarasambandsins – helstu niðurstöður
- Almennt er viðhorf til vörumerkis KÍ gott.
- Konur hafa talsvert jákvæðara viðhorf gagnvart Kennarasambandinu en karlar.
- Helst er viðhorfið jákvætt meðal kvenna á aldrinum 18-49 ára.
- Fólk á aldrinum 18-39 ára hefur jákvæðara viðhorf í garð KÍ en aðrir aldurshópar. Það er, fólk á 40 ára og eldra.
- Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa ögn betra viðhorf í garð KÍ en íbúar landsbyggðarinnar.
- Fólk með háskólapróf er jákvæðara gagnvart Kennarasambandinu en fólk með framhaldsskóla- og grunnskólapróf.
- Þeir sem eru með fjölskyldutekjur á bilinu 800-1.499 þúsund krónur eru líklegri til að vera jákvæðari í garð sambandsins en þeir sem eru með lægstu fjölskyldutekjurnar samkvæmt könnuninni, það er, með minna en 800 þúsund krónur. Þeir sem eru með hæstu fjölskyldutekjurnar, eða með yfir 1.500 þúsund krónur, eru ólíklegastir til að vera jákvæðir í garð KÍ.