MB og Verzló skrifa undir kjarasamning

Fréttir|28. maí 2021

Atkvæðagreiðsla hefst á hádegi í dag.

Skrifað var undir framlengingu kjarasamnings KÍ, vegna FF og FS, og Verzlunarskóla Íslands annars vegar og Menntaskóla Borgarfjarðar hins vegar í gær. 

Atkvæðagreiðsla hefst á hádegi í dag, föstudag, og stendur yfir til klukkan 14 næstkomandi þriðjudag. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum sem starfa í Verzló og Menntaskóla Borgarfjarðar.

 

Um atkvæðagreiðsluna í Verzló

  • Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning KÍ og Verzlunarskóla Íslands 2021 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Um atkvæðagreiðsluna í Menntaskóla Borgarfjarðar

  • Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning KÍ og Menntaskóla Borgarfjarðar 2021 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.