MB og Verzló samþykkja kjarasamninga
Fréttir|1. júní 2021

Meirihluti samþykkti samningana.
Niðurstöður allsherjaratkvæðagreiðslna um kjarasamninga Kennarasambands Íslands vegna framhaldsskóla (FF & FS) og Menntaskóla Borgarfjarðar annars vegar og Verzlunarskóla Íslands hins vegar liggja fyrir. Samningarnir voru samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta. Atkvæðisrétt höfðu félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum sem starfa í áðurnefndum framhaldsskólum.
Úrslit í Menntaskóla Borgarfjarðar:
- Á kjörskrá voru 11
- Atkvæði greiddu 10 eða 90,91%
- Já sögðu 10 eða 100%
- Nei sögðu 0 eða 0%
- Auðir voru 0 eða 0%
Úrslit í Verzlunarskóla Íslands:
- Á kjörskrá voru 83
- Atkvæði greiddu 42 eða 50,60%
- Já sagði 41 eða 97,62%
- Nei sagði 1 eða 2,38%
- Auðir voru 0 eða 0%