Mátti þetta einhvern tímann?

Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum hjá KÍ fjallar um kynferðislega og kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustað í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.
Kórsöngurinn ómar í viðtækjunum og laglínan festist í minni. Hummandi: Það má ekkert, má ekkert, má ekkert lengur... Fullyrðing sem hefur fylgt okkur í einhvern tíma enda krefst samtíminn breytinga á venjum, framkomu og menningu sem er sumum töm, einhverjir hafa aldrei þolað en þagað yfir því og fer yfir mörk enn annarra. En stóra spurningin er: Mátti það einhvern tímann?
Rannsóknir benda til...
Niðurstöður rannsóknarinnar Valdbeiting á vinnustað sem birtar voru í september 2019 greina frá því að um 16% þátttakenda hafi orðið fyrir áreitni á vinnustað, eða um 25% kvenna og 7% karla. Þar kemur einnig í ljós að fólk í yngsta aldurshópnum, 18-25 ára, er líklegra til að greina frá áreitni á vinnustað en eldri þátttakendur. Það eitt er vísbending um að málum af þessu tagi muni fjölga og hefur fjölgað svo mikilvægt er að hafa verkfæri í skúffunni þegar það gerist.
Frumniðurstöður vísindarannsóknarinnar Áfallasaga kvenna benda til að enn fleiri konur hafi orðið fyrir áreitni á vinnustað. Alls tóku 32.811 konur þátt í rannsókninni en 32% þeirra telja sig hafa orðið fyrir áreitni á vinnustað á lífsleiðinni. Niðurstöður þessara rannsókna benda til þess að bæta þurfi samskiptamenningu margra vinnustaða og eru skólar engin undantekning.

Líkamlegt: Óvelkomin faðmlög, kossar, klapp og snerting, farið inn fyrir persónulegt rými með því að halla sér yfir eða króa af þar sem hvoru tveggja er óvelkomið. Óvelkomið káf, þukl og grip.
Hverra er ábyrgðin?
Reglugerð 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum kveður skýrt á um hver beri ábyrgð á félagslegu vinnuumhverfi og þar með samskiptum innan vinnustaða. Avinnurekanda, sem í þessu tilviki er stjórnandi skóla (skólastjóri eða skólameistari/rektor), ber skv. 6. gr. að haga vinnuaðstæðum „þannig að dregið sé úr hættu á að aðstæður skapist sem líkur eru á að leitt geti til eineltis, kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni eða ofbeldis á vinnustaðnum.“ Enn fremur segir í 7. gr. að stjórnanda beri að „bregðast við eins fljótt og kostur er þegar honum berst kvörtun eða ábending um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi á vinnustað og rannsaka eða láta rannsaka.“ Og áfram heldur:
Leiði mat á aðstæðum, í ljós að einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni eða ofbeldi eigi sér ekki stað eða hafi ekki átt sér stað á vinnustaðnum skal atvinnurekandi samt sem áður grípa til aðgerða í því skyni að uppræta þær aðstæður sem kvartað hafði verið yfir eða honum hafði verið bent á.
Þessi klausa ber með sér skýr skilaboð til stjórnenda um að láta kvartanir og ábendingar aldrei óátaldar.
Eins hefur starfsfólk tilkynningarskyldu skv. 9. gr. og ber því að láta stjórnanda vita ef það telur sig hafa orðið vitni að eða orðið fyrir áreitni eða ofbeldi á vinnustaðnum, en þarf jafnframt að vera reiðubúið að færa rök fyrir máli sínu. Allt ber þetta að sama brunni. Tilkynningar um samskiptavanda og áreitni á að taka alvarlega, þær á alltaf að skrá og viðbrögð við þeim eiga að vera fumlaus.

Orðbundið: Klámfengnar athugasemdir, spurningar um kynlíf, orðrómur um kynferðislega hegðun, blístur, stunur, þrálátar beiðnir um stefnumót eða kynlíf þrátt fyrir neitanir og annað sem misbýður.
Húmorslausa tepran
Reglugerðin segir okkur ýmislegt en kannski ekki alveg nóg. Kynbundin áreitni er móðgandi, niðurlægjandi og/eða fjandsamleg orðbundin hegðun sem tengist kyni þess sem hún beinist að. Hér er til dæmis um að ræða brandara og athugasemdir sem lítillækka og tengjast kyni, útliti, klæðaburði, kynhegðun og/eða kyntjáningu þess sem þær beinast að; oft sagt í gríni eða til gamans. Í öllum tilfellum er „grínistinn“ að draga athygli frá faglegu framlagi og virðingu og beina sjónum að útliti eða atgervi og oft að hlutgera einstakling.
Oft tengjast athugasemdir af þessu tagi ómenningu vinnustaðar þar sem sumir mega segja hluti í „gríni“ eða „blátt áfram“ af því að hann/hún/hán er bara svona. Meðviknin á vinnustaðnum er augljós og hræðsla við að rugga bátnum mikil því þá fær ruggandinn næstu „gríngusu“ yfir sig og er húmorslaus tepra og jafnvel „kelling“ eða „hommalegur“ að auki svo það er skiljanlegt að fólk þegi. En þögnin er ekki hlutlaus vegna þess að þeir sem taka þátt, hlæja að svona „gríni“ eða þegja samþykkja óæskilegt hegðunarmynstur.
Því miður þrífst ómenning af þessu tagi innan vinnustaða og verður ekki upprætt nema með sameiginlegu átaki og samskiptareglum. Um leið og til eru skriflegar samskiptareglur (oft nefndar samskiptasáttmáli) má benda á að við höfum samþykkt að svona framkoma sé óásættanleg og með öllu ólíðandi.

Myndrænt: Myndsendingar á samfélagsmiðlum, klámfengin skilaboð, beiðni um kynferðislegar myndir og annað efni.
Þegar grínið gekk of langt
Kynferðisleg áreitni er aftur á móti orðbundin, táknræn og/eða líkamleg hegðun sem vanvirðir, niðurlægir eða auðmýkir þann sem fyrir verður. Birtingarmyndir eru af ýmsum toga og tengjast stundum fyrrgreindri ómenningu vinnustaða en eiga það sameiginlegt að sá sem fyrir því verður finnst farið yfir sín mörk á kynferðislegan hátt og hegðunin er óvelkomin.
Hegðun af þessum toga gerir alltaf lítið úr þeim sem fyrir verður, þar sem sá verður að kynferðislegu viðfangi og athygli er flutt frá faglegu framlagi.

Sjónrænt: Óþarfa gláp, bendingar, augnatillit og svo framvegis.
Viðbrögðin?
Ef mál af þessum toga er tilkynnt er krafan sú að stjórnandi bregðist við á fumlausan hátt og hafi virkar viðbragðsáætlanir. Viðbragðsáætlun felur í sér að einstaklingar hafi skilgreind hlutverk þegar bregðast þarf við ábendingu. Skilgreina þarf hver tekur við tilkynningunni, hver skráir atvikið og hver ber ábyrgð á úrvinnslu málsins. Allt starfsfólk skólans þarf að þekkja áætlunina, þar með talið afleysingafólk, nemar og nýtt starfsfólk.
Þegar...
Þegar mál koma upp er mikilvægt að þekkja þær úrvinnsluleiðir sem í boði eru. Hægt er að óska eftir formlegri málsmeðferð með rannsókn utanaðkomandi fagaðila sem lýkur með skýrslu þar sem finna má m.a. tillögur að leiðum til úrbóta. Einnig má óska eftir óformlegri málsmeðferð þar sem málsaðilar fá stuðning, lögð eru fram drög að áætlun um úrbætur og forvarnir og í kjölfarið fær starfsfólk fræðslu um birtingarmyndir áreitni.
Á meðan...
Meðan á máli stendur, sama hvort málsmeðferð er formleg eða óformleg, verður að fylgjast með líðan málsaðila og bjóða utanaðkomandi handleiðslu allan þann tíma sem málsmeðferð stendur. Einnig þarf að meta málavexti og athuga hvort bjóða þurfi fleirum upp á handleiðslu. Mikilvægt er að stjórnandi sé meðvitaður um viðhorf sín til áreitnimála og hafi getu til að sýna meintum geranda skilning án þess að viðurkenna eða réttlæta hegðunina.
Eftir...
Eftir að máli telst lokið er mikilvægt að gleyma sér ekki í gleðinni. Fara þarf markvisst yfir árangur af aðgerðum og draga lærdóm af ferlinu. Best er að spjalla við málsaðila og fá endurgjöf á ferlið sjálft og hvort tekist hafi að breyta vinnuumhverfi til hins betra. Að endingu þarf að endurskoða forvarnaáætlun því án fræðslu og forvarna fáum við engu breytt.

En þögnin er ekki hlutlaus vegna þess að þeir sem taka þátt, hlæja að svona „gríni“ eða þegja samþykkja óæskilegt hegðunarmynstur.