Markmiðið að styrkja skólann

Fréttir|17. maí 2023

„Ég trúi því virkilega að nú séum við að leggja drög að breyttum tímum í skólastarfi, börnum og starfsfólki til heilla,“ segir Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur, sem leiðir vinnu mennta- og barnamálaráðuneytisins á sviði geðræktar í skólum og nýrra laga um skólaþjónustu. Svava Jónsdóttir ræddi við Sigrúnu fyrir Skólavörðuna.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur sett af stað vinnu við að innleiða aðgerðaáætlun um geðrækt, forvarnir og stuðning við börn og ungmenni í skólum sem hluta af vinnu við menntastefnu til 2030 og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

„Barni sem líður ekki vel gengur verr að ná tökum á náminu sínu og fóta sig í skólastarfi. Sömuleiðis hafa rannsóknir sýnt að markviss kennsla og starfshættir á sviði geðræktar hafa jákvæð áhrif á námsárangur, hegðun, samskipti og skólabrag. Við ættum því ekki að líta á þetta sem viðbót við almennt skólastarf heldur sem grundvöll farsæls starfs, jákvæðs starfsumhverfis og árangursríks náms í skólum.“ Þetta sagði Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur, sem leiðir vinnu ráðuneytisins á sviði geðræktar í skólum og nýrra laga um skólaþjónustu, í viðtali við Svövu Jónsdóttur fyrir vorútgáfu Skólavörðunnar.

Geðrækt í skólum miðpunkturinn

Upphafið að þessari vinnu má rekja til geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlunar stjórnvalda til 2020. Ein af aðgerðum þeirrar áætlunar var að setja á fót vinnuhóp til að fara yfir stöðu geðræktar í íslenskum skólum, hvaða aðferðir eru notaðar, hversu vel þær eru studdar rannsóknum og setja fram tillögur um innleiðingu geðræktarstarfs í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

„Mér var falið að leiða þessa vinnu fyrir hönd Embættis landlæknis en í hópnum áttu sæti fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands, Heimilis og skóla, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneyti og Menntamálastofnun,“ segir Sigrún Daníelsdóttir sem hefur undanfarinn áratug starfað við geðrækt á lýðheilsusviði Embættis landlæknis og nú hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu.

„Mikill fókus í mínu starfi hefur verið á geðrækt í skólum og geðrækt sem hluta af heildrænu starfi sveitarfélaga við að efla vellíðan íbúa. Síðasta haust hóf ég störf að beiðni ráðherra hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu við að fylgja eftir aðgerðaáætlun um geðrækt, forvarnir og stuðning í skólastarfi og vinnu við nýtt frumvarp til laga um skólaþjónustu, ásamt góðu fólki innan og utan ráðuneytisins. Eins og flest vita hafa velferð og farsæld barna yfir höfuð verið áhersluatriði Ásmundar Einars sem ráðherra og þar er menntunin auðvitað lykilatriði.“

Sigrún Daníelsdóttir á þjóðfundi um framtíð skólaþjónustu á Íslandi í mars

Fyrrnefndur vinnuhópur í tengslum við aðgerðaáætlunina byrjaði á því að leggja fyrir viðamikla könnun meðal starfsfólks í leik-, grunn- og framhaldsskólum um allt land til að fá yfirsýn yfir hvernig geðræktarstarfi í skólum er háttað og hversu vel skólar landsins eru búnir til þess að sinna geðrækt, forvörnum og stuðningi við börn og ungmenni. Könnunin var lögð fyrir í öllum framhaldsskólum og um 70% allra leik- og grunnskóla og náði yfir breitt svið stefnu og starfshátta skólans, umhverfis og aðstæðna, uppbyggingar þekkingar og færni meðal starfsfólks, skólatengsla, kennslu félags- og tilfinningafærni, hegðunar, mats og stuðnings í skólastarfi og samstarfs við foreldra og stofnanir. „Ég held að það sé óhætt að segja að þetta hafi verið umfangsmesta athugun sem gerð hefur verið á stöðu geðræktar í skólum hér á landi og þótt víðar væri leitað. Ég hef raunar hvergi rekist á dæmi um að sambærileg vinna hafi farið fram erlendis, og gáfu niðurstöðurnar okkur mikilvæga innsýn í stöðu mála.“

Nánar má lesa um niðurstöður landskönnunarinnar í skýrslu frá 2019, Geðrækt, forvarnir og stuðningur við börn og ungmenni í skólum á Íslandi: Niðurstöður landskönnunar.

„Starfshópurinn vann þétt og vel saman allan sinn skipunartíma, fór yfir niðurstöður landskönnunarinnar ásamt fræðiefni og rannsóknum, innlendum skýrslum og úttektum og efni frá öðrum þjóðum sem höfðu innleitt geðræktarstarf í sínum skólum. Aðgerðaáætlunin um innleiðingu geðræktar, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni í skólastarfi var sannkallað samvinnuverkefni og sú vinna sem farið hefur af stað í framhaldinu er því vel grundvölluð í samtakamætti þessara aðila sem er lykillinn að því að vel takist.“

Grundvöllur farsæls starfs

Sigrún segir að markmiðið með aðgerðaáætluninni sé að styrkja skólann sem vettvang geðræktar, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni. „Í skólum landsins gefst tækifæri til að ná til allra barna og ungmenna í landinu á hverjum degi, sem gerir skólann að einstökum vettvangi þegar kemur að því að efla geðheilsu og vellíðan komandi kynslóða.

Geðheilbrigðismál eru meðal stærstu áskorana sem stjórnvöld í dag standa frammi fyrir og eru þau mál sem einna helst brenna á ungmennunum sjálfum. Tvö stærstu málin sem gjarnan koma upp þegar rætt er við ungmenni um þeirra eigin velferð og framtíð eru annars vegar geðheilsa og hins vegar loftslagsmál. Þetta er því málaflokkur sem er mikilvægt að fái sinn sess í skólastarfi.


Það heyrðist stundum hér áður fyrr að skólinn væri kominn út fyrir verksvið sitt með því að beina sjónum að geðrækt en þær raddir eru fáheyrðar í dag, enda flest búin að átta sig á því að vellíðan barna og ungmenna er lykillinn að farsælli skólagöngu. Barni sem líður ekki vel gengur verr að ná tökum á náminu sínu og fóta sig í skólastarfi. Sömuleiðis hafa rannsóknir sýnt að markviss kennsla og starfshættir á sviði geðræktar hafa jákvæð áhrif á námsárangur, hegðun, samskipti og skólabrag. Við ættum því ekki að líta á þetta sem viðbót við almennt skólastarf heldur sem grundvöll farsæls starfs, jákvæðs starfsumhverfis og árangursríks náms í skólum.

Ekki má heldur gleyma því að vellíðan barna og starfsfólks helst mjög í hendur. Mikilvægur þáttur geðræktar í skólum beinist að kennurum, stjórnendum og starfsfólki og að þau hafi meðal annars þekkingu og færni til að hlúa að eigin velferð og barnanna og upplifi stuðning í starfi. Ein af átakanlegri niðurstöðum landskönnunarinnar var að starfsfólk, ekki síst í grunnskólum, upplifði mikinn skort á stuðningi í þeim áskorunum sem þau standa frammi fyrir. Þetta er staða sem verður að bregðast við og er meðal þess sem verið er að ávarpa í nýjum lögum um skólaþjónustu að frumkvæði ráðherra.

Það er allra hagur að vel takist að stuðla að öflugu geðræktarstarfi í skólum, fyrirbyggja og bregðast snemma við áskorunum og veita nauðsynlegan stuðning.“

Efla þarf menntun

Aðgerðirnar sem starfshópurinn setti fram eru yfir 40 talsins og snúa að fjölmörgum þáttum, allt frá breytingum á Aðalnámskrá og kennaranámi til öflugrar starfsþróunar og þrepaskipts stuðnings í skólastarfi. Sigrún segir að þetta sé risastór halarófa breytinga þar sem eitt hvíli á öðru. „Til þess að hægt sé að innleiða kennslu í félags- og tilfinningafærni á öllum skólastigum þurfa kennarar undirbúning til þess og það kallar á breytingar í námi þeirra. Sömuleiðis þarf Aðalnámskrá að styðja við þessa kennslu og tryggja þarf aðgengi að fjölbreyttu og gagnreyndu námsefni á þessu sviði. Skapa þarf innviði sem styðja við þrepaskipt stuðningskerfi, þar með talið starfræna miðlun, samræmt skráningarkerfi og miðlægan gagnagrunn þar sem hægt er að fá yfirsýn yfir skólagöngu barns. Einnig þarf að efla menntun annarra starfsstétta sem eiga að styðja við skólana.

Það hefur til dæmis verið gagnrýnt að áherslur í skólaþjónustu séu of klínískar og þurfi að miðast betur við vettvang skólans. Á Íslandi er hins vegar ekki í boði framhaldsnám í skólasálfræði þannig að sálfræðingar sem starfa í skólaþjónustu eru yfirleitt klínískt menntaðir. Ég gæti haldið lengi áfram að telja upp atriði sem þyrfti að breyta eða bæta til að framtíðarsýn um skólann sem vettvang geðræktar, forvarna og stuðnings verði að veruleika en eðli málsins samkvæmt kallar slík þróun á samstarf fjölmargra og ólíkra aðila og mun taka langan tíma.

Á Þjóðfundi um framtíð skólaþjónustu, sem haldinn var í Hörpu í mars, var meðal annars rætt um að til þess að börn dafni í skólastarfi þurfi skólinn sjálfur og starfsfólk hans að dafna. Skólinn hvílir á grundvelli þar sem koma til stefnur og aðgerðir stjórnvalda, lög og reglugerðir, Aðalnámskrá og menntun kennara og annarra sem starfa í skólum. Einstaka skóli, kennari eða stjórnandi hefur ekki stjórn á þessum skilyrðum en þarf að treysta á að þessi jarðvegur sé traustur og nærandi. Hér kemur inn ábyrgð meðal annars stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, og háskólastofnana sem mennta kennara og aðrar stéttir sem koma að skólastarfi. Allir aðilar þurfa að taka þátt til þess að innleiðingin gangi vel og skapa henni sterkar stoðir.“

Hvorki einfalt né fljótgert

Sigrún segir að ef vel takist til – ef takist að koma á reglubundinni kennslu í félags- og tilfinningafærni í gegnum alla skólagöngu barna og innleiða árangursríkar aðferðir til að vinna með tengsl og samskipti innan skólans, styðja við jákvæða hegðun og líðan, efla og styðja starfsfólk og mæta einstaklingsbundnum þörfum fyrr og betur en nú – þá hafi hún þær væntingar að það muni gjörbreyta starfsaðstæðum, líðan og árangri í skólastarfi. „Þetta er ekki óskhyggja eða óraunhæfar væntingar heldur það sem rannsóknir hafa sýnt um áhrif þess að vinna markvisst að þessum þáttum ásamt því að hagnýta gögn og innleiða ferli stöðugra umbóta í skólastarfi.“

Sigrún segir að það sé hvorki einfalt né fljótgert að innleiða umfangsmiklar kerfisbreytingar. „Mennta- og barnamálaráðherra hefur til að mynda notað þá lýsingu að það sé eins og að snúa olíuskipi. Hann leggur mikla áherslu á að innleiðingin gangi vel og sé í góðu samstarfi með öllum hlutaðeigandi. Það að breyta starfsháttum á stórum skala tekur mörg ár og markvissa vinnu sem tekst ekki nema með góðu skipulagi, undirbúningi, samvinnu og eftirfylgd. Innleiðing er ekki eitthvað sem gerist af sjálfu sér. Horfum bara á hvernig við tókumst á við COVID-19 faraldurinn. Það voru ekki bara gefin út tilmæli og látið gott heita.

Ef blóm nær ekki að blómstra þá lögum við umhverfið sem blómið vex í – ekki blómið

Það var gríðarmikil vinna á landsvísu með aðkomu úr öllum kerfum, markvisst skipulag og aðgerðir undir skýrri leiðsögn aðila sem höfðu til þess umboð og stuðning stjórnvalda. Viðbrögð Íslendinga við faraldrinum eru gott dæmi um vel heppnaða innleiðingu og þar fékk þjóðin að fylgjast með því hvað felst í svona viðamiklum aðgerðum. Innleiðing geðræktar og þrepaskipts stuðnings í skólum er vissulega á smærri skala þar sem hún nær ekki til allrar starfsemi í landinu en mun ekki síður velta á skýru skipulagi, leiðsögn, eftirfylgd og aðkomu allra þeirra sem þessar breytingar snerta.

Ólíkt faraldrinum mun þetta verkefni auk þess aldrei taka enda því það er enginn endapunktur á því að styðja við faglegt starf í skólum, uppbyggingu innviða og stuðning við börn og starfsfólk. Til að sinna því hlutverki til langframa er verið að leggja drög að nýrri þjónustustofnun á sviði menntamála sem mun sinna miðlægri skólaþjónustu og faglegum stuðningi við skólastarf í landinu. Við höfum aldrei áður haft miðlæga stofnun sem tekur sér þetta breiða hlutverk og þarna er því kominn aðili sem getur sinnt stuðningi við innleiðingu til lengri tíma. Ég ber miklar væntingar til nýrrar stofnunar og hlakka mikið til að sjá hana vaxa í verkefnum sínum. Ég trúi því virkilega að nú séum við að leggja drög að breyttum tímum í skólastarfi, börnum og starfsfólki til heilla.“

Þarf að byrja smátt

Þetta er stórt og viðamikið verkefni og segir Sigrún helstu áskoranirnar við farsæla innleiðingu snúa að skipulagi, áætlunum og stýringu, skilgreindum hlutverkum, hvernig fjármunum er ráðstafað og aðföngum. Þá nefnir hún þjálfun og handleiðslu þeirra sem eiga að starfa samkvæmt nýju skipulagi og að til staðar séu markviss eftirfylgd, árangursmælingar og viðvarandi stuðningur.

„Eins og áður sagði er þetta ferli sem tekur aldrei enda, frekar en annað sem tengist skólastarfi. Verkefnin eru viðvarandi og stuðningurinn þarf að vera það líka. Þetta er ekki átaksverkefni og mikilvægt að stjórnvöld, sem og kennarar, stjórnendur, starfsfólk og foreldrar, sjái það. Önnur áskorun er að það þarf að byrja smátt, prófa sig áfram, meta, læra af mistökum, betrumbæta ferla og vinnubrögð og þróa sig þannig markvisst í átt að vinnulagi sem virkar fyrir hvern skóla. Það er ekki hægt að fara af stað á sama tíma alls staðar og það krefst þolinmæði og þrautseigju.“

Hvað með fyrirmyndir varðandi verkefnið? „Þrepaskipt stuðningskerfi í skólum hafa verið innleidd víða en þegar við vorum að vinna aðgerðaáætlunina litum við meðal annars til skólaumdæma í Bandaríkjunum, Kanada og Skotlandi. Skotland var einnig meðal fyrirmynda við gerð farsældarlaganna um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, en þar í landi hefur farið fram mikil vinna innan allra kerfa um velferð og réttindi barna undir yfirskriftinni „Getting it right for every child“ eða GIRFEC eins og það er kallað í daglegu tali. Það er ótrúlega flott hvernig þeim hefur tekist að stilla öll sín kerfi í kringum þessa hugsjón og það nær einnig til skólakerfisins.“

Að heimilum barnanna frátöldum er skólinn mikilvægasta umhverfi þeirra og mikilvægur vettvangur fyrir þroska og lífsgæði

Öll börn eru einstök

Hvernig tengjast þessi atriði – geðrækt, forvarnir og snemmtæk úrræði – skólastarfi?

„Geðrækt er grunnurinn, rétt eins og almennt skólastarf, þar sem verið er að vinna að því að efla félags- og tilfinningafærni, jákvæð skólatengsl og skólabrag og efla almenna styrkleika og hæfni barna og starfsfólks. Ef við horfum á þetta út frá þrepaskiptu stuðningskerfi á þetta sér stað á fyrsta þrepi, sem er grunnurinn sem allt annað hvílir á. Ef við erum með gæðastarf á þessu þrepi munum við fyrirbyggja mörg vandamál en þó verða alltaf börn sem þurfa aukaaðstoð, hvort sem það er í sambandi við lestur, hegðun eða félagsfærni.

Við þurfum því að hafa tiltæk snemmtæk úrræði og aðferðir til að mæta þessum þörfum hratt og örugglega. Snemmtæk úrræði eru skilgreind á öðru þrepi í þrepaskiptum stuðningi og þau geta verið tímabundin. Það þarf ekki ítarlegt mat eða greiningar og stundum duga einfaldar aðgerðir. Á þriðja þrepi er viðameiri stuðningur við börn og ungmenni sem hafa miklar eða langvarandi stuðningsþarfir. Þar erum við að tala um ítarlegra mat og stuðningsáætlun, oft með aðkomu fleiri kerfa, eins og til dæmis heilbrigðiskerfis eða félagsmálakerfis.“

Sigrún er spurð hvers vegna það skipti máli að huga að þessum þáttum – geðheilbrigði og tengslamyndun til dæmis – en ekki bara einblína á nám, námskrá og einkunnir. „Af því að þetta er allt samtengt og geðheilsa, vellíðan og jákvæð tengsl barna við skólann sinn, samnemendur, kennara og starfsfólk eru órjúfanlegur hluti af farsælli skólagöngu. Líðan barna hefur áhrif á námið og öfugt. Reynsla barna úr skóla og þau sambönd sem þau mynda þar hafa áhrif á þau til lífstíðar.

Að heimilum barnanna frátöldum er skólinn mikilvægasta umhverfi þeirra og mikilvægur vettvangur fyrir þroska og lífsgæði. Þarna er jafningjahópurinn, þarna þroska börnin hæfileika sína og styrkleika, mynda sambönd við annað fullorðið fólk og allt hefur þetta mótandi áhrif á sjálfsmynd þeirra og færni til framtíðar. Við þurfum samt að átta okkur á því að þetta er ekki spurning um líðan EÐA nám – þetta fer saman og það að innleiða geðræktarstarf í skólum þýðir ekki að við ætlum að hætta að horfa á nám og námsárangur. Það er mikilvægur hluti geðræktar að fá að þroskast og efla kunnáttu sína og hæfni og vaxa sem manneskja. Það er því hluti af geðræktarstarfi að hafa miklar væntingar fyrir öll börn og styðja við framfarir þeirra í námi, ekki síður en að efla félags- og tilfinningafærni, jákvæð skólatengsl og jákvæða upplifun af skólastarfi.“

Hvað þurfa kennarar og skólastjórnendur helst að hafa í huga varðandi börn, þroska þeirra og líðan í skólanum?

„Öll börn eru einstök, öll börn geta lært og öll börn eiga rétt á að njóta skólagöngu sinnar. Ég held að ég sé ekkert að segja skólafólki neitt nýtt með þessu og landskönnunin sýndi einmitt að það er mikil áhersla lögð á það að mynda jákvæð tengsl við börn og ungmenni í skólakerfinu, hlusta á þau og taka mark á sjónarmiðum þeirra. Mér finnst almennt mikil meðvitund og samhljómur um það á Íslandi að skólakerfið er fyrir öll börn og það er okkar að mæta þörfum þeirra. Vandinn hefur meðal annars snúið að stuðningi og skipulagi, hvort nauðsynleg verkfæri séu til staðar og hvort starfsþróun sé í boði fyrir kennara og annað starfsfólk skólanna. Það kom líka fram í landskönnuninni að þarna eru sóknarfæri og markmið nýrra laga um skólaþjónustu er að ná betur utan um þessa þætti. Og það þarf að hlúa að kennurum, stjórnendum og starfsfólki því hagsmunir barna og starfsfólks í skólum fara algjörlega saman.“

Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.