Maria Montessori: Framsýn hugsjónarkona

Fréttir|28. júní 2024

„Það er hin fullkomna skipulagning starfsins, sem gerir sjálfsuppeldið kleift og veitir starfsorku barnsins þá útrás, er vekur vellíðan þess og róar það.“ Svona lýsti Maria Montessori kennsluaðferð sinni. En hver er konan á bak við Montessori-aðferðina?

Hver er maðurinn?

Nafn: Maria Tecla Artemisia Montessori
Afrek: Montessori-aðferðin
Fæðingarár: 1870
Dánarár: 1952

 

Maria Montessori var ítalskur læknir, kennari og uppeldisfræðingur. Hún fæddist á Ítalíu 31. ágúst 1870 og lést í Suður-Hollandi 6. maí 1952. Montessori fór snemma ótroðnar slóðir og fetaði menntaveg, ólíkt kynsystrum sínum. Hún varð fyrst ítalskra kvenna til að nema læknisfræði og lauk doktorsprófi árið 1896 frá Sapienza-háskólanum í Róm.

Maria Montessori hóf starfsferilinn á geðdeild háskólasjúkrahússins þar sem hún vann með þroskahömluðum börnum. Hún varð snemma sannfærð um að nauðsynlegt væri að tvinna saman læknisfræði og uppeldisfræði til að ná árangri í starfinu með börnunum og hóf því að kynna sér uppeldisfræðilegar kenningar og þróa áfram. Áhuginn leiddi hana aftur inn á menntaveginn og áfangar í kennslu- og uppeldisfræði og mannfræði urðu meðal annars fyrir valinu.

Samhliða náminu tók Montessori við starfi forstöðukonu við skóla fyrir kennara barna með þroskahamlanir og námsörðugleika í Róm. Í tilraunakennslustofu skólans hóf hún að láta reyna á kenningar sínar, gera tilraunir með aðferðirnar og útfæra þær frekar. Ekki leið á löngu þar til mörg barnanna, sem hafði verið talið að ekki væri hægt að uppfræða, voru farin að skara fram úr í námi þannig að eftir því var tekið meðal menntayfirvalda og -fræðimanna.

 

Myndir frá Montessori-skólanum í Berlin-Dahlem frá 1930.
Börnin stunda garðyrkju áður en þau setjast niður saman til að borða.  


Maria Montessori lagaði í kjölfarið aðferðina að starfi með óþroskahömluðum börnum og úr varð Montessori-kennsluaðferðin. Hún lét reyna á aðferðina í verki og þróaði hana áfram þegar hún tók við stjórn Casa dei bambini, skóla fyrir börn á aldrinum þriggja til sjö ára, sem staðsettur var í fátæktarhverfi Rómar. „Vann hún þar óhemju mikið og merkilegt mannúðarstarf, jafnframt því sem hún hóf athuganir á sálarlífi og þroska barnanna,“ eins og Valborg Sigurðardóttir skólastjóri orðaði það í grein í Menntamálum, sem hún skrifaði í tilefni af andláti Montessori í maí 1952. Fregnir af frjálslegum og óhefðbundnum kennsluaðferðum skólans og árangrinum sem þær skiluðu vöktu heimsathygli og áhugasamir fengu að sjá kennslustund í rauntíma í sérstakri glerkennslustofu, sem sett var upp á heimssýningunni í San Francisco árið 1915.

María Montessori var hugsjónakona og því urðu farir hennar ekki alltaf sléttar, eins og stundum vill verða. Þegar fasistaflokkur Mussolini komst til valda árið 1922 neitaði Montessori að láta nemendur sína ganga í fasískum skólabúningum og neyddist til að flýja land til Spánar. Þegar spænska borgarastyrjöldin hófst árið 1936 hraktist hún þaðan til Indlands þar sem hún hélt áfram að kenna og þróa kennslufræði sín í rúman áratug, eða fram til ársins 1947, þegar hún flutti til Hollands, þar sem hún bjó og starfaði til dauðadags árið 1952.

Ásamt því að ryðja brautina í mennta- og kennslufræðum var Maria Montessori aktívisti sem barðist ötullega fyrir réttindum barna og kvenna. Hún var þrisvar tilnefnd til Nóbelsverðlauna og svo virt í heimalandinu að mynd af henni prýddi ítalska þúsund líru seðilinn.

Montessori undirbýr kennslustund ásamt samstarfsfélaga. 

Montessori-kennsluaðferðin

Montessori, sem var einn helsti frumkvöðull umbótauppeldisfræðinnar í Evrópu á 20. öldinni, taldi börn hafa innbyggða þörf fyrir að læra með því að framkvæma sjálf. Þannig mynduðu skynjun og menntun órjúfanlega heild. Tryggja þyrfti börnum öruggt rými til að gera þeim kleift að fá að fræðast sjálf á eigin forsendum.

Upp úr því varð til, hin þá frjálslega, Montessori-kennsluaðferð sem átti rætur sínar í tilraunasálfræði, þar sem áhersla var lögð á lýðræðislega kennsluhætti og efla skynfæri barnanna og getu þeirra til að taka sjálfstæðar ákvarðanir og beita gagnrýnni hugsun, sem hún taldi forsendu virkrar þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi.

Þetta kallaði á óhefðbundið skólahald þar sem skólinn var hugsaður sem æfingarsvæði barna, húsgögn og innanstokksmunir, kennslutæki og leikföng þar með talin, úr vönduðum efnivið og sniðin að þeirra þörfum. Skólastarfið byggðist á fjölþættu leikfangakerfi sem þroska átti skynjun barnsins og hreyfitækni og hvetja það til sjálfsstarfa. Kennarinn fylgdist með börnunum til að fræðast um námsleið hvers og eins og skráði hjá sér atferli þeirra, þroska og námsframvindu og var reiðubúinn til að rétta fram hjálparhönd þegar á þurfti að halda.

Arfleiðin

Montessori-kennsluaðferðin naut mikilla vinsælda á fyrstu áratugum 20. aldarinnar. „Montessori-skólar risu upp hver á fætur öðrum, ekki aðeins í heimalandi höfundar, heldur og á Englandi, Frakklandi, Hollandi, Þýzkalandi, Rússlandi, Norðurlöndum og Spáni, í Ameríku, Kína og Japan. Sennilega vita fáir, að jafnvel hér á landi voru gerðar tilraunir með Montessori-skóla um nokkurt skeið,“ segir í grein Valborgar.

 


Arfleið Montessori má greina víða. Hér má sjá hana prýða ítalska
1000 líru seðilinn, frímerki frá Indlandi og veggmynd í Belgíu. 


Seinna, með tilkomu fullkomnari rannsóknaraðferða og aukinni þekkingu, hlutu kenningar Montessori gagnrýni fyrir að byggjast á úreltum kenningum um eðli og þroska sálarlífsins og leikfangakerfið var sagt of einhæft og hefta hugmyndaflug barnsins og sköpunarþrá.

Hvað sem því líður lifir hugmyndafræði Mariu Montessori enn góðu lífi. Uppeldis- og menntunarfræðirit hennar hafa verið þýdd á fjölda tungumála og fjölmargar bækur verið ritaðar um aðferðina í gegnum árin. Þá eru enn tæplega 16.000 Montessori-skólar starfræktir um allan heim. „Leikskóla- og dagheimilahreyfingin um heim allan hefur því orðið fyrir miklum og frjóvgandi áhrifum frá Montessori, beint og óbeint, hvaða uppeldisfræðilegri stefnu, sem þeir annars fylgja,“ segir Valborg Sigurðardóttir í grein sinni.

Heimildir:

Þórdís Þórðardóttir. „Hver var Maria Montessori?“ Vísindavefurinn, 5. maí 2011. Sótt 15. febrúar 2024.
Valborg Sigurðardóttir, 1. maí 1952, María Montessori. Menntamál. 41-45. Sótt 16.02.2024.
Montessori Schools. Montessori-vefurinn, 2022. Sótt 16.02.2024.